Ljósberinn - 09.09.1922, Side 1
Jesús sagði: „Leyfið börnunum að koma til min o/j bannið þeim
það ekki, því slíkum heyrir Guðs riki til~. Mark. 10, 14.
II. ár
Reykjavík, 9. sept. 1922
135. blað
Guð valdi hann.
pið hafið víst öll heyrt símans getið, sem getur
flutt fregnir frá einu landi til annars á svipstundu.
En þið hafið líklega ekki heyrt mannsins getið,
sem Guð valdi til að finna upp símann: ritvélina,
stafrófið og símalagninguna. —
Hann var borinn og barnfæddur í Vesturheimi og
hét S a m ú e 1 M o r s e. Hann var snemma hneigð-
ur til náms og lista. Málaralist og dráttlist voru
honum kærastar, og þessar listir stundaði hann
af kappi og „vildi gerast afbragð eða hreint ekki
neitt“.
En þegar vonir hans í þessa átt stóðu sem hæst,
þá var spilt fyrir honum, svo að hann komst ekki
að því starfi, sem hann sótti um, en það var: að
skreyta „Hvíta húsið“ Bandaríkjaforsetans með
listamálverkum.
Honum félst nú heldur um þetta, eins og þið
getið nærri. Fór hann þá í ferðalag á gufuskipi
(1832), og var ferðinni heitið til Frakklands; en
ú skipinu var þá varla talað um annað en þá upp-
götvun, að hægt væri að gera járn segulmagnað