Ljósberinn - 06.09.1924, Side 1
Jesim >,agði: „Leyfið börnunum að koma til mín og bannið þeirn
það tklci, því slíkúm lieyrir Gruðs rítci tilu. Mark. 10, 14.
Alt hefir hartn gjört ve],
Og þeir úndruðust nœsta mjög og sögðu: Alt
hefir hann gjört vel. (Mark. 7,37. Úr guðspj. á
12. sd. e. Trínitatis).
peirundruðust — þeir fengu að sjá og heyra
svo margt undursamlegt.— Verkin sem Jesús gjörði
og orðin sem hann talaði — aldrei höfðu þeir séð
eða heyrt neitt þvílíkt. Hann fór um landið, og á vegi
sínum mætti hann andlegri og líkamlegri neyð, sárs-
auka og synd, en hvar sem hann kom ljómaði birta
sannleikans og ilmur kærleikans fylti alt ljúfri ang-
an. pegar menn litu yfir starfsferil hans, sögðu þeir:
Alt hefir hann gjört vel. Jafnvel óvinir hans urðu
að viðurkenna þetta, því að þeir gátu enga synd
fundið hjá honum.
Hreinn og sterkur barðist hann móti syndinni og
bölinu, sem af henni leiðir, barðist móti ógnarvaldi
myrkursins og vann sigur. Hann kom og lifði hér á
jörð og leið dauða á krossi, til þess að frelsa synd-
uga menn.
Enn í dag er hann á ferð. Ungir og gamlir mæta
honum enn og meðtaka af honum náð og frið og
blessun. Sífelt bætist við þann skara, sem með