Ljósberinn


Ljósberinn - 06.09.1924, Blaðsíða 2

Ljósberinn - 06.09.1924, Blaðsíða 2
294 L JÓSBERINN undrun og- aðdáun í hjarta sínu fylgja honum, og þetta er hinn sameiginlegi lofsöngur: A 11 h e f i r h a n n g j ö r t v el. Sæll er sá sem gjörir Jesúm að athvarfi sínu. Hann kemst að raun um að Jesús er læknirinn allra meina, örugg hjálp í sérhverri raun, leiðtoginn, sem leiðir til sigurs. Y. ----o---- Bróðurfórnin. það var einu sinni óhlýðinn sonur, sem hvarf burtu frá föður sínum, gekk í lið með ræningjum og gerðist sjálfur stigamaður, sem öllum stóð ótti af. Faðir lians bauð þjónum sínum að fara og flytja syni sínum þau skilaboð, að ef hann nú iðraðist at- hæfis síns og vildi snúa heim aftur, skyldi hann taka á móti honum sem syni sínum og fyrirgefa hon- um alt. En þjónarnir neituðu allir að fara þessa ferð; þeir voru svo hræddir við ræningjana og aðrar hætt- ur í skóginum. En eldri bróðir hans, sem elskaði hann eins og faðirinn, bauðst til að fara og flytja honum fyrir- gefningar-tilboð föðursins. þegar hann kom út í skóginn, réðust ræningjarnir á hann og veittu honum banvæn sár, þar á meðal bróðir hans. En þegar hann varð þess var, að þetta var eldri bróðir hans, barði hann sér á brjóst og grét hástöfum. Hinn flutti honum nú boð föður þeirra um fyrirgefningu og mælti síðan: „Svo auðn- aðist mér þó að ljúka erindinu! Nú er ákvörðun lífs

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.