Ljósberinn


Ljósberinn - 06.09.1924, Side 5

Ljósberinn - 06.09.1924, Side 5
LJÓSBERINN 297 rei um það. Mamma varð alt að gera ein fyrir heim- ilið, auk saumanna. — Móðir þeirra fór nú að sjá, að það væri rangt af sér að láta Köllu sína ekki vita, að þetta ætti ekki svona að vera. En hún hugsaði með sér: „Bemskutíminn er stuttur, lofum henni að njóta hans að fullu, eins og henni líkar bezt, því að komi hún ekki auga á það sjálf, að hún eigi að hjálpa mér, þá gerir hún alt með ólund, sem eg segi henni að gera. Eg vona, að eg endist enn um tíma til að vinna svona hjálparlaust. — II. Draumurinn. En svo bar það við eina nótt, að tungl var í fyll- ingu. það var trú manna, að á slíkum nóttum fengi allir hlutir mannamál og töluðu saman. þessa nótt vaknaði Kalla sviplega og spratt upp í rúminu. Henni fanst einhver kalla á sig með nafni. Hún litaðist um. Mamma hennar var þá nýbúin að slökkva og gengin til náða. Hún hafði setið við sauma sína að vanda langt fram yfir miðnætti. Nú svaf hún fast, svo ekki gat það hafa verið hún, sem kallaði á Köllu, En einhver kallaði, það var áreiðanlegt. Og nú heyrði hún sagt með stálhörðum rómi: „Nei, mér finst, að enginn ætti að mæla Köllu bót. Ilún er löt og harðbrjósta. það er nú minn dómur“. Gat það verið, að það væri fingurbjörgin hennar mömmu, sem talaði svona? Ekki var annað að sjá. Hún sá ekki betur en að llún klifraðist upp á endann á löngu stögunarnálinni, sem stóð á nálakodda

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.