Ljósberinn - 01.05.1937, Side 2
LJóSBEBINN
r>-
TIIL BARHANNÁ
>Flý þettci*. Er sá hugað-
ur sem flýr? Nei. Ef þú hleyp-
ur frá henni litlu systur þinni
þegar seppi kemur og lætur
hana eiga sig, ertu ekki hug-
aður. Ef þú hleypur burt þeg-
ar þú ert búinn að skemma
eitthvað og lætur síðan sem
ekkert sé, ertu ekki hugaður.
Það sýnir ekki hugrekki að
flýja. Og þó er ritað í bibl-
íunni, að við eigum að flýja.
Flettu upp fyrra bréfinu til
Tímóteusar, sem er eitt hinna
síðustu af hinum 13 hréfum
Páls postula. Flettu upp 6.
kapítula, 11. versinu. Hvað er
ritað þar? >Flý þetta«, segir
postulinn. Sá er hugaður, sem
flýr syndina. Jósef var hug-
aður, þegar liann flýði frá
konu Pótífars. Enginn má
halda að hann sé meiri mað-
ur, ef hann talar ljótt. Það
er óþokkaskapur og heigul-
skapur meira að segja að fara
með ljótar sögur. Það er rœf-
ilskapur að fara með ósann-
indi. Það er aumingjaskapur
að láta sigrast af því, sem
saurugt er. »Flýjum þetta!«
Getum við það? Nei, ekki af
sjálfum okkur. En við getum
talað um það við Jesúm í
kveldbæninni okkar. Yið get-
um beðið hann um hugrekki
til að flýja, þegar við eigum
að flýja, og um hugrekki til
að standa fast, þegar við eig-
um að standa fast. Flýðu til
Jesú, þá flýr hið illa frá þér!
Viltu ekki festa það í minni?