Ljósberinn - 01.05.1937, Page 8
LJÓSBERINN
Hinn heimsfrægi, sænski landkönnnður,
Sven Hedén, segir svo:
»Afengir drykkir eru tíðasta orsökin til
slysa og áfloga, lasta og afbrota, eldsíkveikj u
og mannmorða. Þeir, sem neyta áfengra
drykkja, missa alla starfslöngun og sjálfsvirð-
ingu. Ef ég hefði leyft þjónustufólki mínu,
sem ég hafði með mér í Asíuferðum mínum,
að neyta áfengis, hefði ferðin mín ekki borið
þann árangur sem ég ætlaðist til og raun
varð á. í flutningi mínum fannst aldrei dropi
af áfengi.
Þetta ætti æskulýður íslands að athuga.
Nautn áfengra drykkja fylgir ætíð böl og
ógæfa.
Hverjir taka á móti okkur fyrir handan tjaldið?
Ég hefi einu sinni lesið um heið-
ursfrú nokkra, sem dreymdi athyglis-
verðan draum eina nóttina.
Til hennar kom engill og leiddi
liana brott með sér, þangað til að þau
komu í undurfagran stað. Þar sýndi
hann henni alla dýrðina og meðal
annars ódæma skrautlegt hús.
»Hver á að búa í þessari dærna-
lausu villu?« spurði frúin.
»Það á skósmiðurinn, sem er granni
þinn að gera«, svaraði engillinn.
»En skósmiðurinn er ekki vanur
að búa í svona fínu og fallegu húsi.
Húsið hans er óttalega ómerkilegur
kumbaldi, hreinasta greni«.
»Já,« sagði engillinn, »en skósmið-
urinn hefir nú samt sent efnivið, til
þess að byggja þetta hús úr.«
Síðan fór engillinn með liana að
litlu, lirörlegu og ósjálegu húsi.
»Hver á að búa í þessu húsi?«
spurði frúin.
»Hér átt þú að húa«.
»Ég er ekki vön að húa í svona
greni«, mælti frúin með þykkjusvip.
»Þú hefir ekki sent efnivið til
þess að byggja betra hús, en það hef-
ir skósmiðurinn gert, og þess vegna
hefir hann nú betra hús til að búa í
en þú«, mælti engillinn.
Frúin lét áminninguna, sem Guð
gaf henni með draumi þessum, sér að
kenningu verða.
Fjallasýn á vori.
Fagurt er til fjalla
fagurt sveitum í;
klœðir œttjörð alla
œskufegurð ný.
Gaman er að ganga
grœna út í hlíð;
ilmiblómin anga
ung og kát og fríð.
B. /,
/32