Ljósberinn - 01.10.1939, Qupperneq 3
Október 1939
8(rídsmadur Drottins.
Hér sjáið þið mynd af Páli postula, þar
sem hann stendur á miðri Aresarhæð um-
kringdur heiðingjum. Hann er að fl.ytja
þeim fagnaðarboðskapinn u,m frelsarann.
Það var kærleiki Krists sem knúði Pái
til þe.ss að fara borg úr borg og land úr
landi til þess að kalla á heiðingjana, að
þeir lærðu að þekkja. hinn sanna Guð og
letu frelsast. Páll var stríðsmaður Drott-
ins. Baráttan. var oft hörð og .margar voru
þrautirnar sem hann varð að ganga í gegn-
um á ferðum sín.um en hann gafst ekki
upp. Að lokum lét hann lífið fyrir trú sína.
Áður var hann á meðal óvi.na Krists, já,
fremstur þeirra. Hann leitaði uppi þá sem
trúðu á Jesúm og færði fyrir dómstólana,
svo að þeir yrðu dæmdir til fangeJsisvistar
eða dauða f.yri,r það, að þeir trúðu á Jes-
úm Krist, sem frelsara sinn og Drottinn.
En er Páll var á einni slíkri ofsóknarferð
mætti hann hinum upprisna Frelsara og
á þeirri stundu varð hann að nýjum manni..
Að þeirri stundu hafði hann ofsótt Jesúm,
en frá þeirri stundu var hann stríðsmað-
ur Drottins og barðist fyrir því, að gera
þjóðirnar að Jesú lærigiveinum.
»Ég fyrirverð mig ekki fyrir fagnaöar-
eri.ndið, því að það er kraftur Guðs til
hjálpræðis hverjum þeim, sem trúir« —
skrifar Páll í Rómverjabréfinu.
Fagnaðarerindi Jesú Krists. fór sigur-
för Um löndin og þessi sigurför heldur
áfram enn í dag. Stöðugt bætist við læri-
sveipahópinn hans. Ert. þú ekki með í þeim
hóp, kæra barn?
Pnll postuli talar á Aresar-hœð.,
Við Sikulum ganga fram undir krossi
Jesú, sem er sigurmerki kærleikans. Þá
verður iíf vort sigurför, þrátt fyrir erfið
lei,ka og þrautir, sem kunna að mæta okkur.
Guði séu þakkir, sem gefur oss sigurinn
fyrir Drottinn vorn Jesúm Krist.
y.
Sem ungur Fönix flýgur æ
hans i’rægðarorð um land og sæ
og yfir alla storð.
Menn geta’ að vísu vorkennt Sál,
en virða menn og elska Pál,
er lífsins flutti friðarmál
og fagnaðarins orð.
(V. Br.: Bibliuljóð).