Ljósberinn - 01.06.1940, Blaðsíða 3

Ljósberinn - 01.06.1940, Blaðsíða 3
20. árg. 6. tbl. Júní 1940 Siænirniir. •I.eyfið liörimniini að koma lil raín og bannið þeim það ekki, |»ví að slíkra er guðsríki.® — Mark. 10,14. »É»: er skírður. Huggun hæsta hjarta rnínu veitir það«. En sértu skírður og sé það þér til huggunar, veit ég, að þú elskar Guð og gleymir ekki að hlusta á , orð lians og tala við hann — í bæn. Ég veit, að allar góðar, trúaðar mæður kenna börnunum sínuin að biðja. Fn það eru ekki öll börn svo lánsöm, að eiga slikar mæður. Þó að þær liafi komið uieð börn sín til Jesú í skírúinni, koma þær ekki allar með þau til hans í bæn- inni. Það er inikið tajj fyrir börnin. Hvað er meira tap en að missa Jesú? Suin börn kunna margar og íallegar bænir, en sum kunna eiigar. Nú langar mig til að skrii'a nokkrar bænir, sem ég vildi óska, að öll börn á landinu kynnu. ★ Þú byrjar þá með því að signa þig. Ef þú kannt það ekki, skal ég kenna þér það. Þú leggur hægri lófann á ennið og segir: »1 nafni Guðs Föðurs«, fæiir síðan hendina niður á brjóstið og s*»gir: *Son- ar«, berð hendina upp að hægri kinn og segir: »og Anda,« færir hendina yfir á hina kinnina og segir: »heilags«. M. ö. o., þú gerir krossmark og segir: »1 nafni Guðs Föður, sonar og Anda heilags.« Síðan segir þú: Guð minn góður komi til mín og varðveiti mig frá öllu illu til lífs og sálar þennan dag og alla tíma í Jesú nafni Amen.« (Sé það kvöldbæn, segir þú: - • »Þessa nótt og alla tíma . .«) Næst kemur bænin, sem Jesús sjálfur kenndi oss. Hún skiptist í sjö bænir, sem þú skalt taka vel eftir. Ég skal setja töl- stafi við þær. Hún er svona: »Faðir vor, jm sem ert á himn- um, 1) helgist ]>itt nafn, 2) tilkomi |>itt ríki, 3) verði |>inn vilji evo á jörðusemáhimni 4) Gef 088 í dag vort tiaglegt brauð, 5) og fyrir- gef oss vorar skuldir, svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldu- nautum, 6) og leið 088 ekki í freistni, 7) held- ur frelsa oss frá illu; því að j>itt er ríkið og mátt- urinn og dýrðin að eilífu. Amen«. Eftir þessa bæn koma blessunarorðin. »Drottinn blessi mig og varðveiti mig. Drottinn láti sína ásjónu lýsa yfir mig og sé mér náðugur. Drottinn upplyfti sínu augliti yfir mig og geli mér frið. I Jesú nafni. Amen*. Ilér koma tvær kvöldbænir: »Vertu, Guð, yfir og allt um kring með eilífri blessun þinni. Sitji Guðs englar saman í liring sænginni yfir miniii*. »Láttu nú ljósið þitt lýsa við rúmið mitt, eigðu J>ar sess og sæti, signaði Jesú mæti«. Margar tleiri bænir kunna börn. Gaman þætti mér að fá bréf frá einhverjum börn- um, sem vildu sýna inér bænirnar sínar. Þau kunna auðvitað iuargar bænir, sem ég kann ekki. En lærðu líka að biðja Guð með þín- um eigin orðum. Hvað mundir þú t. d. segja við Guð, ef þú vildir biðja hann um sólskin? Guð blessi þig. Magnús Runólfsson.

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.