Ljósberinn - 01.06.1940, Page 18

Ljósberinn - 01.06.1940, Page 18
Kvöld eitt hittu Jjau hersveit undir forys.tu em- irsins Nur-el-Tadhil, sem áður hafði vei ið liðsfor- ingi í. negraher Khedivans, og var ekld nœrri eins ósiðaður og aðrir Madliistar. Hann fylgdi Jjeim síðasta áfangann til Khartum. Gegnum Jnönga gjá komu þa.u að Níl. Menn, hestar og úlfaldar fnru um borð í hina breiðu, flötu Dahabijs (fljótabáta), sem fóru af stað, vegna hinna. sterku árataka, yfir stjörnulýstar bylgjur fljótsins. Brátt glitruöu Ijðs fram undan Jieim. Nur-el-Tadhil hnippti í Idrys, rétti út hendina og sagði: »Khartum!« Pau settust að í úthverfi borgarinnar í húsi einu, sem hafði tiIh.eyrt ríkum, itölskum kaup- ma,nni. Konur emírsins hlúðu með umhyggju að Nel, fóru með hana á efstu hœð hússins, til að sofa. Um nóttina, varð Stasjo að dvelja meðal úlfald- anna og hestanna í garðinum. Þött hann væri þreyttur, leið á löngu áður en hann festi blund, vegna sporðdrekanna, sem stöðugt skriðu á fötum hans, og einnig vegna óttans um Nel, sem skilin hafði verið frá honum, svo að ha.nn gat ekki gætt hennai'. Saba, var líka. órór og æddi um garðinn. Næsta morgun kl. sex lögðu þau af stað til Om- durman; þar áttu þau að hitta Madhiann og Smain. Stasjo til mikillar gleði, kom Dinah ofan af efstu hæðinni með litlu vinstúlkuna, hans. Og síðan lögðu Jiau af stað i ferðina gegnum bæinn, þangað er fljótabáturinn lá. Stórir skarar a.f fólki, sem sífellt jukust, söfnuðust um þau, til að sjá ensku börnin og Saba, sem Chamis teymdi. Frá öllum hliðum heyrðist ógnandi hróp. óttaleg, h,öi- undsflúruð andlit beygðu sig yfir börnin. Sunnr skellihlóu en aðrir formæltu þeim. Stasjo óskaði af öllu hjarta, að þa.u yrðu sem fyrst afhent Smadn. Þau Jiekktu h.ann Iió, og í Port Said h.afði hann sýnt þeim mikla vináttu — að minns.ta kosti á yfirborðinu. Það myndi sennilega verða miklu þolanlegra, að vera fangi i húsi h,ans. Nú reið á að hitta, hann í Omdurman. Með hóp villimanna á hælum sér komu þau að bátnum, sem þau fóru undir eins um borð i. Langa hríð heyrð- ist ekkert annað en áraslögin og gjálfrið í vafn- inu, er krókódilar börðu það með hala sínum. Peir komu syndandi úr suðurátt til Khartum.

x

Ljósberinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.