Ljósberinn - 01.06.1940, Qupperneq 4

Ljósberinn - 01.06.1940, Qupperneq 4
100 LJÓSBERINN Vatnaskógur Inn úr Faxaflóa skerast nokkr- ir firðir. Sá lengsti þeirra er Hval- fjörður. Sá, sem hefir gert þann fjörð og Hvalfjarðarströnd fræg- asta, er Hallgrímur Pétursson, sálmaskáldið góða, að Saurbæ á Hvalfjarðarströnd. Saurbær stend- ur í brekku, sem hallar niður að sjó, en að baki hæðarinnar er dal- ur sem heitir Svinadalur, einn aí' mörgum með því nafni á fslandi. Dalur þessi stefnir hér um bil frá vestri til austurs, norðan við hann rís Skarðsheiðin, sem hér að sunnan sýnist ekki jafn há og er ekki eins hrikaleg og að norðan. Sunnan við dalinn er Ferstiklu- háls og fleiri fjöll og hæðir. f botni dals- ins eru þrjú vötn, og við það neðsta, Eyr- arvatn, er Vatnaskógur í hlíðum dalsins, og niður með Laxá, en það er afrennsJi vatnanna í dalnum. Vatnaskógur var tekinn í vernd skóg- ræktar ríkisins og girtur. En 1923 hefst svo nýtt. tímabil í sögu skógarins, því þá kom þangað hópur af drengjum frá K. F. U. M. í Reykjavík til að dvelja þar í sum- arleyfi sínu. Svo það sumar glumdi skóg- urinn í fyrsta sinn af gleðisöng og ópum drengja, og það hefir hann gert á hverju Eyrarvatn, Lindarrjóðu r. sumri síðan (að undanteknu árinu 1937, þá var starfið í Kornahlíð). Annarsstaðar í heiminum hefir sumar- starfið orðið mikill þáttur hins kristilega starfs, og eins hefir orðið hér á landi, þó ekki sé það orðið eins mikið og það þarf, og verður áður en líkur, en það mál ræði ég ekki hér. Hér skal aðeins ræða um starfið í Vatnaskógi til þess að einhver sem ekki hefði ákveðið sig, en sæi þessa grein, tæki þá ákvörðun, að vera með í sumar ef ástæður leyfa. Allt starf Kristilegs félags ungra manna miðar að því að hjálpa meðlimum og öðr- um til að eignast. lifandi samfélag við Guð sinn og frelsara, Jesúm Krist. — En þessu marki er reynt að ná margvíslega í Vatnaskógi. Par eru drengir og ungir menn saman í leik og gleði, söng og sundi, bæn og þakkar- gerð, lausir við bæjarys, lausir við ljótan munn- söfnuð. Parna eiga þeir fjölmargar gleðistundi.” við saklausan leik, hvort -sem leikurinn heitir knattspyrna, sund, hlaup, gönguferðir, sögulestur i rigningu eða letimók í sól- skini, að ógleymdum bát.n- um og vindsængunum.

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.