Ljósberinn - 01.08.1940, Blaðsíða 5

Ljósberinn - 01.08.1940, Blaðsíða 5
LJÓSBERINN 121 Napóleon og eplakonan Napóleon keisari I. gekk í æsku sinni í herraannaskólann í Briene. Af því hon- um þótti góð aldini, keypti hann þau iðulega aí' konu nokkurri þar í bænum, sem seldi jarðarávexti. Þegar hann var peningalaus, lánaði hún honum það, sem Iiann fékk hjá henni, og þegar hann aftur eignaðist skildinga, borgaði haun það. En þegar hann fór úr skólanum, átti hún þó lijá lionum nokkra dali, og þegar hún í síðasta sinni færði honum fullan disk af eplum og vínberjaköngl- um, sagði hann: »Nú fer ég burt, kona góð, og get ekki borgað yður; en yður skal ekki verða gleymt«. Sölukonan svaraði: »Setjið það ekki fyrir yður, ungi herra; Guð haldi hendi sinni yfir yður, og geri yður að gæfu- manni». Eins og alkunnugt er, varð Napóleon síðan hershöfðingi, þá fyrsti ræðismaður, og loksins keisari; en ekki hafði epla- konan í Brienne fengið skuld sína borg- aða, þó hafði hún þessi orð hans: »Yður skal ekki verða gleymt-, og þau voru eins góð og reiðupeningar, eða jafnvel betri. Því einu sinni, þegar menn áttu von á keisarannm til Bríenne, kom hann þangað nokkru áður í kyrþey, og var á gangi að hugsa um sína liðnu æskudaga. Allt í einu stóð hann við á strætinu, studdi fingrinum á ennið, eins og hann væri að hugsa sig um, nefndi eplakon- una á nafn, spurði, hvar hús hennar væri, en það var orðið mjög hrörlegt, og gekk inn til hennar með einum manna sinna. »Get ég fengið hér nokkuð að hressa mig á?« sagði keisarinn. »Já, gjarnan«, sagði konan, eplin eru fullsprottin*, og svo bar hún þeim epli. Meðan komumenn voru að borða þau, spurði annar þeirra; • Þekkið þér líka keisarann, sem kvað vera hér í dag?« »Hann er ekki enn þá kominn*, svaraði konan; »hann kemur í dag; því ætli ég þekki hann ekki? Hann hefur keypt af mér margan disk og marga körfu fulla af aldinum, meðan hann var ungur og gekk hér í skóla*. •Borgaði hann þá líka reglulega allt, sem liann fékk?* spurði komumaður. »Já, því var óhætt*, svarði konan. Þá inælti komumaður: »Þér segið ekki satt, kona, eða þér eruð minnislitlar. Fyrst er það, að þér þekkið ekki keisar- ann, því að ég er keisarinn, og þá er hitt, að ég hefi ekki borgað yður eins reglulega og þér segið, því þér eigið enn þá tvo dali hjá mér*, og í sama vetfangi lagði fylgdarmaður hans fjögur eða fimm hundruð dali á borðið. Þegar konan nú þekkti keisarann aftur, og heyrði gull- peningana hringla, féll hún honum til fóta, og varð frá sér numin af gleði og þakklátsemi. Börn hennar urðu líka öld- ungis hissa, og vissu ekki, hvað þau áttu að segja til alls þessa. Síðan bauð keis- arinn að rífa hús ekkjunnar, og reisa annað betra hús handa henni á sama stað. »í þessu húsi*, sagði keisarinn, »ætla ég að halda til, þegar ég kem til Brienne, og vil láta kalla það í höfuðið á mér*. Hann hét einnig konunni, að koma hörn- um hennar til manns, og enti það líka. Bæn fyrir börnum. Jesús, yfir börnin breiddu blessun þína, fyr og síð, þau um brautir lífsins leiddu, líkna þeim, er harðnar stríð. Breyttu hverri skúr í skin, skýldu einkum lífsins hlyn; láttu geisla Ijóssins þína á litlu barnahjörtun skína.

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.