Ljósberinn - 01.08.1940, Blaðsíða 6

Ljósberinn - 01.08.1940, Blaðsíða 6
122 L JÓSBERINN Kæru, litlu sætindabelgir! Nú kemur vitanlega óðara, vatn í munninn á ykkur þegar þið farið að lesa þessa fyrirsögn, Ávaxtakaka — ekki nema það þó. En þið skuiuð nú ekki gera ykkur of háar vonir -— þessa köku fáið þið ekki að borða — það gerðu önnur börn — og ég veit, að þið get- ið vel unnt þeim þess. En nú byrjar sagan. Níunda barnið var alveg nýkomið — lít - ið óg elskulegt barn. Og þetta var árið 1939 — styrjaldarárið mikla — sem menn hryllir s,vo að hugsa um. — Ekki var það nú samt storkurinn, sem kom með þetta litla barn. Það var Guð sjálfur, sem hafði sent það. Það var guðs- gjöf. Þarna lá það allt í einu í körfuvögg- unni og orgaði. Það var svo sem auðheyrt, að þetta var piltbarn, hann grenjaði svo dugnaðariega. Drengir grenja hæversku- laust á meðan þeir eru litlir — og hættir stundum við að gera það líka, þegar þeir stækka. Það var engu líkara en að þessi litli snáði væri bálreiður yfir því, að hafa orðið að ónáða sig niður til jarðarinnar. Hann krepti hnefana, þegar hann var vakandi — og meira að segja — svaf hann meo litlu hnefana harðkreppta. Þrem vikum síðar var móðir litla drengs- ins aftur á ferli í stofunni. Hún hagræddí gluggatjöldunum, svo að blessuð sólin skim ekki of skært á andlit litla drengsins, og svo ; ekk hun að. vcggunni og klappaö: mjúklega, smágerðu, rósrauöu höndunum. Þið haidið eðlilega, að hjarta hennar hafi verið barmafullt af gleði, og reyndar ætti það aö vera svo, þegar við eignumst dá- samlegar gjafir. En það var nú eitthvao saman við fögnuð hennar. Andlit frúar- innar — h.ún heitir Jósefína — bar vott um miklar áhyggjur. Þó frú Jósefína léti ekki á því bera, þurfti hún oft að strjúka burtu tár, sem runnu niður fölar ldnnar hennar, og svo var eins og hún hefði enga eirð við vinnu sína, og gekk margsinnis að gamla, stóra matarskápnum í eldhús,- inu, og rannsakaði nákvæmlega það, sem í honum var. En þó að hún gerði þetta, bæði oft og lengi, kom það fyrir ekki. Leir- brúsinn, sem mjölið var í, var nærri tóm- ur, og feitmetisskálin galtóm, og þarna var ekki að sjá, nema, tóma bolla og diska. Þetta hefði nú samt ekki gert svo mik- ið til, ef ekki hefði verið jafnilla ástatt með budduna. En hún var einnig mjög létt og grannvaxin. En það, sem mest reið á af öllu, var að borga húsaleiguna. En svo var aftur á móti gnægð af ein- hverju öðru á heimili frú Jósfínu. Það var stór, hreinþveginn trébekkur við hrein- þvegna, stcra matarborðið. Og á þessum stóra bekk sátu við allar máltíðir — að morgni, kveldi og miðjan dag, svo margir krakkar, sem á honum toldu. Og þetta voru glaðir og röskir krakkar, áhyggjuiaus- ir, en ákaflega matlystugir. Og það var auðséð á öllum þessum börnum, að þau höfðu ekki liðið skort að þessu. Tvær geitur áttu heima í geitakofanum — og mjólkin úr þeim var bæöi bragðgóö, holl og nærandi. Og þá spiliti það nú ekki,

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.