Ljósberinn - 01.08.1940, Page 13
LJÖSBERINN
129
UKGU VIKIR!
Máske hafið þið heyi’t talað um það, eða
lesið sjálf um það í clag'blöðunum, hve af-
brotum barna og unglinga f jöjgar ört. Slíkt
er alvarlegt íhugunarefni. En við ykkur,
sem lesið Ljósberann, vildi ég segja þetta:
Villist ekki burt, frá Guði föður og frels-
ara ykkar, Jesú Kristi. - Biðjið Guð að
varðveita ykkur frá hinum vondu vegum.
Við freistingum gæt þín og falli þig ver,
]jví freisting hver unnin til sigurs þig ber,
gakk öruggur rakleitt mót ástríðu her,
en ætíð haf Jesúm í verki meö þér.
Hinn vonda soll varast, en vanda þitt mál,
og geymdu nafn Guðs þíns í grandvarri sál;
ver dyggur, ver sannur, því Drottinn ])ig sér,
haf daglega Jesúm I verki með þér.
Bezta ráðið til þess, að varast hinn vonda
soll, er, að vera vandur að vali félaga. Guðr
rödd hið innra í ykkur (samvizkan), segir
ykkur hvað þið eigið ekki að gera. Og' vilji
félagar ykkar lokka ykkur til að gera eitt-
hvað slíkt, þá leiðið þeim fyrir sjónir, að
þetta sé á móti Guðs vilja, en vilji þeir
ekki á ykkur hlýða, þá yfirgefið þá og
slítið öllum félagsskap við þá.
Legg'ið leið ykkar á þá staði, þar sem
starfað er fyrir æskulýðinn í anda krist-
innar trúar. Hvort heldur þið eruð félag-
ar í deildum K. F. U. M. eða í Unglinga-
stúkum I. 0. G. T. eða hvortveggja, þá
verið trú heiti ykkar.
mikill vandi að leysa úr þeirri spurningu,
hverjum hann varð til mestrar blessunar.
Um kvöldið sagði Lotta við bróður sinn:
»Hinrik, þetta var dásamleg og stórkost-
leg hugmynd, að gefa beykisbörnunum
aprikósukökuna. Ef við hefðum ekki gert
það, þá hefðum við ekki helclur getað gert
mömmu svona glaða í dag'«.
J:m.
Trflr skaltu vera og tryggur i lund,
þá mun tíðin þér hamingju flytja.
Varfærin tunga og verkafús mund
þér mun verða til hagsælla nytja.
Oft má h,ið smáa til upphefðar ná,
ef þú gáir að veginum rétta.
Láttu nú sjá að þú leiðina þá
leggir ávallt um sléttur og kletta.
Já, ungu vinir, sem þetta lesið, þegar
þið heyrið eða lesið um það, hvað margir
villast, þá setjið ykkur það mark og mið,
að varast hinn vonda soll. En gerið meira.
Reynið að hjálpa þeim, sem þið sjáið að eru
að snúa út á hinn breiða veg, sem til glöt-
unar iiggur. Biðjið Drottinn ykkar og' frels-
ara að gefa ykkur kraft til þess.
O faðir, ger mig lítið ljós
um lífs mlns stutta skeið,
til hjálpar hverjum hal og drós,
sem hefir villzt af leið.
0 íaðir, ger mig blómstur blítl,
sem brosir öllum mót,
og kvíðalaust við kalt og hlýtt
er kyrrt á sinni rót.
6, faðir ger mig ljúflingslag,
sem llfgar hug og sál
og vekur sól og sumardag,
en svæfir storm og' bál.
ö faðir, ger mig styrkan staf
að styðja hvern sem þarf,
unz allt það pund, er Guð mér gaf,
ég gef sem bróðurarf.
ó faðir, ger mig sigursálm,
eitt signað trúarlag,
sem afli blæs I brotinn hálm
og breytir nótt I dag.
Lærið þennan fagra sálm og' gerið hug-
sjónir hans að lífsstefnu ykkar, þá verðið
þið foreldrum ykkar til gleði, landi ykkar
til blessunar — og Drottni til dýrðar.
J. H.