Ljósberinn - 01.08.1940, Qupperneq 17

Ljósberinn - 01.08.1940, Qupperneq 17
LJÓSBERINN 133 bezta leikfélaganum s,vo mikilla kvala og þjáninga. Demant bar kvalir sínar meö hinni mestu stillingu og lét, á engu bera. En þeg- ar Georg ætlaði að sýna honum samúo sína og nálægðist hann, sýndi hann hon- um tennurnar og urraði til aðvörunar. Það var eins og hann vildi segja: »Farðu burtu! Þú hefir komið illa fram við mig, þó'að ég hafi stöðugt verið þér tryggur. Vertu aðeins feginn, að ég launa ekki illt með illu«. »Nú, jæja, hann er nú ekki annað en hundur«, hugsaði Georg, »og fyrst hann óskar ekki eftir að vera vinur minn, getur hann látið það vera; mér stendur á sama«. En svo var nú þó ekki. Georg var í rauft og veru mjög sorgmæddur yfir hrekkjar bragði sínu og yfir hinni glötuðu vináttu við Demant. Slæm samvizka kvaldi hann stöðugt, Nokkrum vikum seinna komu langvar- andi rigningar og fljótið varð stöðugt vatnsmeira. Það hafði skifzt í tvær, straumharðar kvíslir, og eftir þeim flaut allskonar rekadót, Georg og félagar hans höfðu mikla ánægju af öilu því, sem rak með strauminum, og þegar trjábolir kcmu svo nálægt bakkanum, að drengirnir gátu stokkið út á þá, hættu þeir í gáleysi lífi sínu við þennan hættulega leik. Og það fór líka illa að lokum. Við mis- lreppnað stökk hrasaði Georg á stórum trjáboli og féll í fljótið, sem reif hann fljótt með sér, án þess að nokkur félaga hans reyndi að hjálpa honum. Demant hafði setið á fljótsbakkanum. Augu hans fylgdu. Georg eftir — um leið og hann hvarf undir yfirborð vatnsins; en þegar honum skaut upp aftur og hann baðaði út höndunum í dauðans skelfingu, hallaði hundurinn undir flatt og gaf hon- um nánar gætur. Það var eins og hann vildi segja: »Lærðu nú, hvað það hefir að segja, að vera yfirgefinn af vinum sínum og að breyta aldrei framar illa gagnvart neinum!« En nú skildu allir drengirnir loks, að það var um líf eða dauða að ræða fyrir Georg, og svo kölluðu þeir til hunds- ins: »Út eftir honum, Demant! Út eftir hon- um Demant!« Og í einum spretti þaut hundurinn út í fljótið og synti hratt aö hinum drukknandi dreng, sem nú hafði misst meðvitundina. Þegar Demant komst að honum, náði hann góðu taki á fötum hans með sínum sterku tönnum, og svo synti hann að bakkanum. Það var mjög erfitt verk; en viljugar hendur teygðu sig eftir hundinum, og skömmu síðar lá Georg í grasinu, þar sem drengirnir reyndu að vekja hann til lífsins með lífgunaraðferð- um, sem notaðar eru við drukknaða, menn. Demant s.tóð magnþrota og horfði á þá, svo hrissti hann sinn rennvota pels og fór því næst, rólegur leiðar sinnar. Nú hafði hann sannað að hann var of stór- lyndur til að vilja hefna sín fyrir þær kval- ir, sem Georg hafði verið valdur að forð- um. —- Hami liafdi Immað Hlt með góðu. En þið getið bara ímyndað ykkur, börn- in góð, að upp frá þessum degi elskaði Ge- org hundinn sinn af öllu hjarta og hann gleymdi aldrei að sýna honum ást sína og þakklæti. Demant hafði snert hann djúpv með sínu frábæra, innræti, og hann hafoi kennt honum blessunarríka lexíu, það er að segja: Breytið vel við óvini yðar, og þetta leitaðist Georg ávallt við að gera síð- an, sjálfum sér og mörgum öðrum til gæfu og gengis. M. G. þýddi. Sólskinsvísur. I dag er auðséd, Drottinn minn, dýrð pín gœskuríka-, maður heyrir málróm pinn, maður sér pig líka. Fögur sjón er sól og vor, sumar, haust og vetur, auðlegð pína og yndisspor enginn talið getur. (P. Ó.).

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.