Ljósberinn - 01.08.1940, Side 24

Ljósberinn - 01.08.1940, Side 24
140 LJÓSBERINN Lénharður las bréfið aftur og aftur við daufa og ósandi ljóstýru og var svo nið- ur sokkinn í það, að hinn mikli hávaði af samræðum félaga hans og hlátrasköllurn lét í eyrum hans eins og fjarlægur kliður. Honum heppnaðist að ná í ritföng, og hann noitaði tímann þangað til að blásið var til hvíldar, til að setja saman bréf til íinriks Langdons. Tíminn leið fljótt í þessu tilbreytinga- lausa og erfiða hernámi. Sunnudagurinn einn knm með cfurlitla tiibreytingv. Þá gekk Lénharður skemmtigöngur í hinni fögru borg, eða virti fyrir sér skipafjöld- ann við bryggjurnar á Patapscof-fljótinu, þar sem hinar fögru Baltimore-skonnortur, hin hraðsigldustu seglskip hafsins, sýndu hin himingnæfandi möstur og listfenga reiðabúnað. Hin einstöku, blökku gufu- skip, sem lágu á meðal þeirra, litu út eins og biksvartir koJamokarar innan um hefð- arfrúr í skrautklæðum. Á einni slíkri skemmtigöngu mætti Lén- harður svertingja einum, sem gekk stát- inn og bíspertur og var í einkennisbúningi Norðanmanna. Þegar hann sá Lénharð, vældi hann af gleði og þaut í sprettinum til hans, klappaði honum öllum, og' bunuðu úr honum ósköpin öll af sundurlausum og lítt skiljanlegum setningum. Nú þekkti líka, Lénharður þennan svarta stríðsmann, og var það honum mikið fagnaðarefni. En stríðsmaður þessi var fornvinur hans, Toiby, sem áður var þræll á Eikarlundi. Þegar þeir höfðu báðir jafnað sig dálít- ið, hafði Toby langa sögu að segja um það, hvernig hann með aðstoð frelsissinna hafði sloppið frá húsbónla sínum, sem hafði keypt hann, og komist til Noorfolk í Virg- iníu. Þaðan komst hann í skip til Balti- mo>re, en varð að vinna um borð fyrir far- gjaldinu. 1 Baltimore gekk hann í nýstofn- aða svertingjaherdeild, sem var sett á laggirnar Sunnanmönnum til storkunar, og nú var Toby í hersetu. í smábæ einum þar í grenndinni. Lénharður spurði hann, hvort hann vissi nokkuð um herra Trevor eða, Filippus, en um þá hafði hann ekkert heyrt, en vissi aftur á móti, að Hrólfur var í Richmond. Það urðu nú langar umræður milli þess- ara fornvina, sem báðir höfðu fengið að kenna á grimmd þælahaldsins, og áttu nú að taka þátt í bardaganum til þess að upp- ræta bölvun þessa. Mættust þeir síðan venjulega á hverjum sunnudegi. Einn af síðustu dögum ársins var allt í uppnámi á setuliðsstöðvunum. Löngu áð- ur en dagrenningin hafði sigrað myrkur næturinnar, var gerð nákvæm rannsókn á öllum einkennisbúningum og öll vopn grannskoðuð og fáguð. Svona mikill hafði handagangurinn al- drei verið áður, enda voru ungu mennirnir alveg hamslausir. Sú fregn hafði sem sé komið fyrir nokkrum dögum, að hinn mikli hafnarbær, Savannah, hefði verið tekinn af Shermann hershöfðingja, og ástæðan fyrir þessum fjörkipp og áhuga var meðal annars sú, að búist var við sjálfum for- setanum, Abraham Loncoln. Hann var kominn beina leið frá Washington, til þess að blása sjálfur hugrekki og áhuga í brjóst herdeildunum frá Maryland. Jafnvel þó að hið leiðinlega snurfus ætti ekki venjulega upp á háborðið hjá nýlið- unum, urðu þeir ekkert annað en áhug- inn og skylduræknin, svo að allt, sem glansað gat, ljómaði eins og það hafði al- drei gert áður. Og loks. kom hið langþráða, hátíðlega augnablik, þegar allar setuliðsherdeildirn- ar stóðu á hinu víðáttumikla skrúðgöngu- sviði. Það var fagur vetrardagur. Harðleik- inn norðangarður með fannburði hafði gert enda á síðustu minningum haustsins, en sólin sendi geislaflóð sitt yfir sjónarsvið- ið, eins og hún gerir jafnvel um miðsvetr- arskeið á breiddarstigi Suður-ltalíu. Hin tindrandi og svalandi snjóbreiða skar óþægilega í augun og gerði alla skugga dökkbláa. Og* ef reynt var að hvíla augun

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.