Ljósberinn - 01.08.1940, Side 30

Ljósberinn - 01.08.1940, Side 30
146 LJÓSBERINN Hvað segfja börnin? Grasaferð. Það var snemraa morguns. Fuglarnir voru nývaknaðir og farnir að syngja. En þó var fólkið í Dal komið á fætur. Það var líka von að það færi snemma, því það ætlaði til gi’asa og þurfti langt að fara. Yngsti sonur hjónanna átti líka að fá að fara og var kominn út á hlað, heldur patt- aralegur að gá til veðurs. Svo voru. hrossin komin í hlaðið. Fólkic kvaddi nú hjónin, því að þau ætluðu að vera heima. Síðan var haldið af stað. Fólkið hlakkaði til ferðarinnar. Það þekkti þá ánægju, að labba í hægðum sínum um hlíðarnar. Þegar komið var á áfangastaðinn, tók hver sinn poka. og piltarnir hrossin og síð- an var farið að tína grösin. Eftir dálítinn tíma var fólkið orðið svangt og tók upp nestið, sem það hafði með sér. Síðan fór það aftur að tína. Svo eftir langan tíma sér fólkið að loft- ið er orðið skýjað og þótti því kominn timi til að fara heim, enda voru. allir orðnir sárir á höndunum og með fulla poka. Svo var lagt af stað heimleiðis, og fólkið flýtti sér á undan rigningunni, sem var að koma, og þegar það reið í hlaðið í Dal, var kom- inn suddi. Og fólkið fór strax að hátta, þreytt, en ánægt. eftir skemmtilegan dag. En úti snddaði rigningin og fuglarnir birgðu sig- niðui' í hreiðrum sínum cg biðu, þess, að morgundagurinn kæmi með sól og hita. Sigtvriaug Guðjönsdóttir. Lóan. / Það var einn góðan veðurdag í vor, að ég var að sækja hrossin suður yfir Axar- kíl. Ég rak þau öll á undan mér og sat á mesta gæðingnum. Þegar ég kom heim undir bæinn, fóru tryppin að stökkva út undan sér, eins og þau væru að elta eitt- hvað. Ég fór af baki til að athuga þetta og þá sá ég lóu, se.m ekki gat flogið. Ég sá ekkert að henni annað en það, að efri gog'gurinn var brotinn. Ég fór með lóuna heim, en hún át Jítið hjá okkur og eftir þrjá daga dó hún, eflaust af matarleysi. Annað hvort hefir hún ekki haft lyst á því, sem henni hefir verið boðið eða hún hefir ekki getað fært. í nyt vegna þess, að hún var meidd. Næsta sunnudag á eftir saumuðum við kassa úr pabbá, því að tré- smiðir vorum við ekki. Síðán rifum við stykki úr ónýtri flík og höfðum fyrir lík- klæði. Við lögðum svo lóuna í kassann og ofan á hana slaufu úr rauðu silki. I slauf- una var nældur miði, sem fáein kveðjuorð voru rituð á með svörtu bleki, og þar á meðal þessi litla ferhenda, sem öllum er kunn: Allar stundir okkar hér er mér ljúft að muna; fyllstu þakkir flyt ég þér fyrir samveruna, Síðan fó-rum við með kistuna suður á tún og tókum gröf, þar sem okkur þótti heppilegast vegna umferðar.. Ekkert lag var sungið og þegjandi mokuðum við ofan í gröfina. Unrmr Kristjámsdóttir. Ferð austur á Papós. Almannaskarð heitir skarð, sem er í fjallgarðinum milli Nesjasveitar og Lóns. Það var í júní í sumar að »Barnafélagið Von« tók sér ferð á hendur upp á Al- mannaskarð, en þaðan er talið eitt falleg- asta útsýni hér á landi. Um kl. 4 nóttina áður en farið var, voru ílestir krakkarnir farnir að hreyfa sig úr rúmunum, því enginn vildi víst láta standa á sér. Það hafði nú ekki öllum orðið svefn- samt um nóttina, tilhlökkunin var svo mikil. Við. áttum að vera komin út á Landteigs- bakka stundvíslega kl. 6 f. h. Þaðan var farið á »trillu« út á Höfn og voru þeir pabbi og Ari á Borg með okkur. Ferðin gekk stórslysalaust, »trillan« strandaöi

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.