Ljósberinn - 20.05.1933, Síða 2
130
LJOSBERINN
Boðorð — Fyrirheit.
Heiðra föður þinn og móður —r
til þess að þér vegni vel og þú verð-
ir langlífur. — Efes. 6, 2.—3.
Þetta eru gTundvallarlög mannlífsins.
Guð, seni gaf okkur þessi lög, hann
gaf okkur líka frjálsræði til að brjóta
þau. En hvort sem við höldum þau eða
brjótum, þá mun þó lífsreynslan sann-
færa okkur um, hve heilög þau eru.
Margir halda í æsku, að þeir geti að
ósekju bakað foreldrum sínum sorg. En
með aldrinum komast þeir að raun um,
að lífið verður þungbært þeim, er særa
hjörtu foreldra sinna viljandi.
Kæru börn, sem lesið eða heyrið þessi
orð: verið góð og hlýðin föður ykkar og
móður meðan þið hafið þau hjá ykkur,
svo að þið þurfið ekki að gráta iðrun-
ar- og ásökunartárum, þegar þau eru
horfin frá ykkur. Látið föður og móðir
fá að sjá það, að þið metið umhyggju
þeirra, erfiði og' fórnir ykkar vegna.
Gerið ykkur það ljóst, að allar hugsanir
þeirra snúast um ykkur.
Gleð þú föður þinn og móður með-
an þau eru á lífi. Það er of seint þeg-
ar þau eru dáin.
Kæri unglingur, sem ert hættur aó
biðja bænirnar, sem mamma þín og
pabbi kendu þér; þú, sem lítilsvirðir
þann Guð, sem hefir verið traust og at-
hvarf foreldra þinna; þú, sem gengur
á þeim vegum, sem faðir þinn og móð-
ir eru hugsjúk yfir - - ó, hugsaðu þig
um, hvílíka sorg þú bakar þeim með
framferði þínu!
Þú veizt hversu þau elska þig, og þú
veizt hvernig þau biðja fyrir þér; þú
veizt að þau gráta þín vegna. Hvert
skref sem þú gengur á breiða veginum,
er eins og hnífstunga í viðkvæm .hjörtu
þeirra.
Hvernig getur þú fengið þig til slíks
athæfis? Hvernig getur þú leikið þér
að þeirri synd, sem særir hjörtu for-
eldra þinna ólífissárum?
En ykkur, kæru ungu vinir, sem fyrir
áminningar og bænir föður og móður
hafið valið að ganga á Guðs vegum, ykk-
ur vil ég minna á þetta: Heitasta þrá
foreldra ykkar er að fá að sjá kristin-
dóm ykkar í aaglega lífinu — að ávext-
ir hans komi í ljós á heimilinu, —
ekki aðeins gagnvart þeim sjálfum,
heldur og í umgengni við systkini
ykkar og aðra heimilismenn. Þau þrá
að sjá alt dagfar barnanna sinna mót-
ast af sönnum kristindómi.
Heiöra föður þinn og móður! Þetta
boðorð er stílað beint til þín. Það er
fyrsta boðorðið með fyrirheiti: Ef þú
heldur það, þá vegnar þér æfinlega vel.
Guð hjálpi þér til þess!
O'. Hallesby. Á. Jóh.
----■»><*><•---
Tónsnillingurinn mikli
og
syst.ir hans.
Fyrir meira en hálfri annari öld áttu
tvö systkini heima í smábænum Salz-
burg í Austurríki. Þau hétu Wolfgang
Mozart og Anna Mozart. Faðir þeirra
var söngkennari og börnin hans voru
langduglegustu nemendurnir. Sagt er að
Anna hafi verið orðin leikin j að spila
á slaghörpu, þegar hún var 6 ára, en
þó gat Wolígang náð ennþá fegri tón-
um úr þessu gamla hljóðfæri. Enginn
þarna í dalnum hafði heyrt nokkurt
barn slá gömlu hörpuna svo yndislega.
En sú var tíðin, að foreldrarnir voru
bláfátæk, svo að þau höfðu stundum
ekkert til inatar og urðu börnin þá aö
leggjast svöng til svefns. En þau voru
sæl og glöð þrátt fyrir það.
Einu sinni kom þeim til hugar að
ganga út í skóginn og réð Wolfgang
ferðinni. Anna hafði það helzt í huga,