Ljósberinn - 01.02.1947, Síða 4

Ljósberinn - 01.02.1947, Síða 4
24 LJÓSBERINN Pegar ég var barn Ég er fæddur og upp alinn í Laufási við Eyjafjörð. Við sýstkinin vorum 5. og með okkur ólzt upp drengur, sem Sigurð- ur hét, alltaf nefndur Siggi í daglegu tali, sonur vinnulijúa, sem voru gift hjá föð- ur mínum. Hann var nokkurn vegin jafn- aldri minn, en ég var þó elztur krakkanna og réð því mestu í liópnum. Þar sem ein kvíslin úr Fnjóská fellur fram í fjörðinn, er löng eyri og slétt, sem nefnd er Laufáseyri. Þar rak upp mikið af skeljum, skelkussum, kúfungum, meyjadoppum og hörpudiskum. Þetta kölluðum við krakkarnir einu nafni „gull“, tíndum það í fjörunni, fluttum heim, röðuðum því og flokkuðum, og höfðum fyrir kýr, kindur, hunda, ketti o. s. frv. Eitt sinn var ég niðri á Laufáseyri um vortíma að tína „gull“ handa yngri syst- kinmn mínum. Ég hef þá verið um 7 vetra gamall. Þegar ég kom fram undir eyrar- oddann, kemur vætukjói úr háa lofti og ber mig með vængnum. Hann renndi til Hið hörmulega er, að ég gerði ekki það sem ég vissi, að mér bar að gera og varð •gerspilltur unglingur. Ég bef ekkert mér til afsökunar. En hve ég vildi óska, að ég hefði verið gott barn. Ó, að ég hefði sótzt eftir því sem gott var. Foreldruni þínum þjóna af dyggð', það má gæfu veita; varastu þeim að veita Btyggð, viljirðu gott barn heita. (H. P.) hvað eftir annað og barði mig mörg högg, svo að ég varð bæði hræddur og reiður. Mér þótti minnkun að flýja fyrir svo lít- illi skepnu og kom í hug, að hann mundi eiga egg þar nálægt; fór ég því að leita og fann hreiðrið fljótlega með 2 eggjum í. Ég tók stein, kastaði honum í eggin og molaði þau bæði. „Hafðu nú þetta fyrir liöggin“, sagði ég við kjóann; en þegar hann sá missi sinn, fleygði hann sér nið- ur á eyrina, baðaði vængjunum og bar sig aumkunarlega. I bræði minni þótti mér vænt um, hve illa hann bar sig, og þóttist hafa liefnt mín vel. En á leiðinni heim, þegar mér, með „gullaskjóðuna“ á öxlinni, var runnin reiðin, fór ég að hugsa um þetta og fann þá, að þetta var illa gert. Það var ekki af vonzku, en sökum móðurástar, að kjó- inn fór að berja mig; hann var að verja afkvæmi sitt, og ég fann þá, að hann átti eggin, en ekki ég, og að ég hefði rangt gert að spilla því, sem honum þótti vænt um. Ég iðraðist því eftir verkið og sagði krökkunum upp alla sögu, þegar heim kom. Eftir nokkurt umtal gerðum við það með okkur, að við skyldum aldrei framar mölva egg fyrir fuglum, og það var efnt. En annan ljótan sið höfðum við fyrir og eftir þennan tíma. Við tókum egg frá fuglunum og létum sjóða þau í matinn lianda okkur. Að því var aldrei fundið við okkur, svo við hugsuðum ekkert um þetta annað en það væri rétt í alla staði og mætti svo vera. Þegar ég nú minnist þess, hve vænt

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.