Ljósberinn - 01.02.1947, Síða 13

Ljósberinn - 01.02.1947, Síða 13
LJÓSBERINN 33 XXI. Barnardo vinnur fyrsta sigur sinn. Frá þessum degi voru fátæki „götu- flakkarinn“ ög læknastúdentinn beztu vinir. Barnardo sagði kunningjum síiyim frá fóstursyni sínum. Og brátt kom hann Jim í festur til verkamannafjölskyldu, sem átti heima skammt frá sjúkrahúsinu, er hann vann við. Hr. og frú Jones voru ekki rík, en áttu nóg fyrir sig. Þau voru bæði kristin og þótti þeim því sérstaklega vænt um starf það, sem Barnardo vann fyrir fátækustu börnin í hverfinu. Nú þurfti Jim ekki lengur að hafa áhyggjur vegna daglegra þarfa sinna. Ilann var næstrnn óþekkjanlegur fyrir sama dreng. Fyrst var hann færður í bað, og frú Jones þvoði honum liátt og lágt, unz granni kroppurinn hans var orðinn ljósrauður. „Komdu hingað, Edward“, kallaði hún til manns síns. „Sjáðu, hversu horaður hann er, litla skinnið“. „Þetta er hræðilegt að sjá“, sagði hr. Jones. „Við verðum að sjá um að hann fái ætan bita. Það er hægt að telja í hon- um rifbeinin“. Höfuð hans var vandlega kembt og frú Jones velti vöngum yfir öllum vargnum. Gömlu fatagörmunum hans var brennt, enda voru þeir til einskis nýtir. En í stað- inn fékk hann hrein og ný föt. Jim var yfir sig hrifinn. Hugsa sér: Ný ullarskyrta, fín, hvít skyrta og svartir sokkar. Auk þess jakki og buxur úr sama efni. Jim liafði aldrei ’ eignast slík föt. Þær fáu flíkur, sem hann hafði klæðst, voru útslitnar áður en hann eignaðist þær. Hann fékk einnig nýja stígvélaskó. En skó með heilum sólum hafði hann ekki átt síðan hann fór í skemmtiferðina forð- um með Anthony og Jane. Barnardo stundaði nám sitt og skólann af hinum mesta áhuga. Félagar hans virtu hann fyrir dugnaðinn, en mörgum þeirra sýndist hann harla einkennilegur náungi. Þeir komust nefnilega að því, að hann prédikaði fyrir fólk stöku sinnmn í frí- stundum sínum á auðu svæði rétt hjá sjúkrahúsinu. Það voru að vísu margir, sem töluðu á strætum og gatnamótum, en þeim virtist að stúdent ætti ekki að leggja slíkt fyrir sig. En Barnardo sinnti engu spotti félága sinna. I nánd við sjúkrahúsið var alræmd krá. Kvöld nokkurt ákvað Barnardo að gera /

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.