Ljósberinn - 01.02.1947, Síða 15

Ljósberinn - 01.02.1947, Síða 15
LJÓSBERINN 35 til að greina frá því, hverjir hefðu verið upphafsmenn að árásinni, en hann neit- aði því. „Eg kom til þess að prédika fagnaðar- boðskapinn, en ætla mér ekki að leita til réttvísinnar“, sagði hann. Það hafði mikil áhrif á gesti krárinn- ar, þegar þeir fréttu, að Barnardo vildi ekki afhenda lögreglunni málið. Seinna sendu þeir sendinefnd til sjúkrahússins og höfðu spurnir af líðan Barnardos. Og þeir lofuðu því hátíðlega, að í fram- tíðinni skyldu þeir ekki skerða eitt ár á höfði hans. Barnardo lá sex vikur, en liann hafði unnið mikinn sigur. XXII. Barncrdo segir frá Jim og félögum hans. í þeim liluta af Norður-London, sem heitir Islington, var stór skáli, sem var einkum notaður fyrir vörusýningar. Kvöld nokkurt, í október, átti að halda þar fjölmennt mót. Kristniboðar víðs veg- ar úr heiminíun ætluðu að koma sam- an og ræða um starf sitt. Hvert sæti í skálanum var setið, þegar prestur, dr. Davidson að nafni, kvaddi sér hljóðs og flutti ,ávarp. Á palli fyrir framan ræðu- stólinn sátu þekktir áhrifamenn frá Bretlandi og nýlendunum. Þeir voru heiðursgestir. Einn þessara manna var Barnardo. Kristniboðarnir stóðu upp hver af öðr- Um og skýrðu frá starfi sínu meðal hinna framandi þjóða. Einn sagði frá veru sinni ttieðal negranna í Afríku, annar frá hættusömu starfi í Kína, sá þriðji ræddi um Indland. Seinna um kvöldið gekk dr. Davidson til Barnardos og hvíslaði ein- hverju að honurn. Barnardo varð eld- rauður í framan og hristi höfuðið. En dr. Davidson mælti: „Jú, þér verðið að gera þaö. Barnardo“. Skömmu seinna stóð presturinn í ræðu- stólnum. „Kæru vinir“, sagði hann, „því miður hefur einn þeirra ræðumanna, sem hér ætlaði að tala í kvöld, tilkynnt for- föll sín. En hér inni hjá okkur er ungur maður, sem hefur unnið þarft og gott starf fyrir fátækustu börnin í þessari borg. Þetta er ungur læknanemi, Thomas Barnardo að nafni, og hefur hann í hyggju að gerast kristniboði í Kína. Thomas Barnardo mun nú segja ykkur frá starfi sínu í Eastend“. Barnardo riðaði á fótunum, þegar hann stóð upp og gekk í áttina til ræðustólsins. Þetta kom honum algjörlega á óvart. Hann liafði aldrei flutt fyrr ræðu á fjöl- mennum fundi. I huganum leitaði hann til Guðs um hjálp. Hann steig, fölur og kvíðinn, upp í ræðustólinn. Það lá við að honum sortnaði fyrir augum, þegar hann leit yfir mannfjöldann. Hann vissi tæplega, livað hann átti að segja, en allt í einu var eins og slæða væri dregin frá augum hans, og liann sá greinilega fyrir sér Eastend með þröngum, óhreinum göt- um, þar sem guggnir menn og tötralegir drengir reikuðu um. Ilægt og hikandi byrjaði hann að tala. Hann sagði fi’á litla drengnum, sem hafði staðið við eldinn og ekki vildi fara, um þá ellefu, sem hann hafði fundið sofandi á þakinu nóvemberkvöldið minnisstæða, og alla þá, sem liann hafði séð hjálpar- þurfandi á götum úti. Smátt og smátt

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.