Ljósberinn - 01.02.1947, Side 16

Ljósberinn - 01.02.1947, Side 16
36 LJÓSBERINN náði hann sér á strik og gleymdi algjör- lega óframfærni sinni. Þegar hann hafði lokið máli sínu, varð þögn í nokkur augnablik. Síðan dundi lófaklappið yfir. Hann stóð kyrr í ræðu- stólnum og undraði sig á þessu. Var það fyrir honum, sem klappað var? Hann hafði ekki ímyndað sér, að frásögn hans yrði tekið svona vel. Og klappið hélt áfram. Nú var klappað í takt. Hann hrökk við, eins og af dvala. Hann hneigði sig klaufalega og gekk til sætis síns. Þegar hann í fundarlok gekk út úr salnum, fann hann einhvern koma við handlegg sinn. Það var ung stúlka. Hún var sýnilega mjög hrærð, því að tár glitr- uðu í augum liennar. „Afsakið. Viljið þér gera svo vel og lofa mér að tala við yður nokkur orð?“ „Já, sjálfsagt, með ánægju“. „Eg hef dregið saman nokkrar krónur, sem ég hafði í hyggju að gefa til kristni- boðsstarfs í Kína. En viljið þér nú ekki nota þessa peninga til starfsemi yðar? Ég kenni svo sárlega í brjósti um Jim og félaga hans“. Barnardo leit undrandi á stúlkuna. Hann var á báðum áttum, livað hann skyldi gera. Hingað til hafði hann sjálf- ur ásamt vinum símun annazt öll út- gjÖld. Átti hann að taka á móti þeim pen- ingum, sem stúlka þessi hafði unnið sér inn, ef til vill með miklu striti og erfiði? En áður en hann tók nokkra ákvörðun, lagði hún lítinn pakka í hönd hans. Þegar liann kom heim, sá hann, að í pakkanum voru aðeins örfáar krónur. Honum þótti mjög vænt um þessa gjöf. Ekki vegna peninganna, heldur vegna þess að þetta var fyrsta gjöfin, sem áskotn- aðist, af manneskju, sem vissi aðeins um starf hans, en þekkti hann sjálfan ekki minnstu vitund. XXIII. „Þetta skal öll London fá aö vita“. Dag nokkurn fann bréfberinn Barn- ardo hvergi nokkurs staðar. Og hann var reglulega gramur, því að hann ætlaði að koma honum þægilega á óvart. Hann þurfti að afhenda honum stórt bréf, sem skjaldarmerki var á. Hann hinkraði við og velti bréfinu fyrir sér, ætlaði að skilja það eftir hjá nágrannan- um, en hætti svo við það og gekk niður tröppurnar. Slíkt bréf sem þetta var ekki hægt að trúa Pétri eða Páli fyrir. Hjá hliðinu mætti hann Jim, sem liann þekkti vel. Þeir atliuguðu bréfið í sam- einingu. Hvað þurfti sjálfur jarlinn af Shaftesbury að skrifa Barnardo um? Bréfberinn reyndi að hafa taumhald á forvitni sinni. Átti hann að afhenda Barn- ardo bréfið og forvitnast um innihald þess, eða átti hann að láta Jim fá það, sem myndi fara með það á sjúkrahúsið, þar sem Barnardo vann? Niðurstaðan varð sú, að Jim fékk bréfið. Barnardo varð undrandi, þegar hann sá skjaldarmerki jarlsins á bréfinu. „Hvað heldur þú að þetta sé, Jim?“ „Opnaðu það“, sagði Jim. „Nú, það get ég auðvitað. Réttu mér hnífinn þarna“. Jarlinn bauð Barnardo til miðdegis- verðar að Grosvenor Palads. Þó að eldingu hefði slegið niður, myndi Barnardo ekki hafa orðið jafn hissa. Að- eins einu sinni hafði hann hitt Aslaley

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.