Ljósberinn - 01.02.1947, Síða 20

Ljósberinn - 01.02.1947, Síða 20
4>ydimetkurförin (66 4/ SAGAÍ MYNDUM eftir HENRYKSIENKIEWICZ Sjón sú, sem þeir sáu, var ofvaxinn skilningi þeirra, svo þeir vissu ekki hvað til bragðs skyldi taka. ÁttU þeir að flýja? Ráðþrota spurðu þeir hver annan: „Hverjir eru þetta, sem koma til okkar, og hvað vilja þeir okkur?“ Kali reið til móts við þá. Hann nam stað- ar það fjarri þeim, að þeir gætu ekki hæft hann nieð spjótum sínum, reis upp í ístöðunum og hrópaði til þeirra: „Menn! Heyrið rödd Kalis. Kali, sonur Fumha, hins volduga konungs Wahima-anna, sem ríkir á hökk- urn Basso-Naroks. Ó, heyrið, heyrið! Og ef þið skiljið orð hans, þá takið vel eftir liverju orði“. „Við skilj- um!“ hljóðaði svarið frá hundruðum mannsharka. „Biðjið konung yðar að ganga fram og opna munn sinn og eyru, svo hann taki betur eftir“. „M’Rua! M’Rua!“ hrópuðu margir. M’Rua gekk nú frain fyrir raðirnar. En hann gekk ekki nema þrjú skref fram. Hann var gamall, hár og sterkbyggður negri, en kjarkleysið var augsýnilega hans veika hlið, því fætur hans skulfu undir honum og hann varð að stinga spjótskeftinu í jörðina, til þess að styðja 6Íg við það. Hinir lier- mennirnir fóru að dæmi hans og ráku spjótin niður í jörðina til merkis um, að þeir vildu rólegir hlýða á orð hinna ókunnu manna. Rödd Kalis hljómaði á ný: „M’Rua, og þið, mcnn M’Ruas! Þið liafið heyrt, að það er sonur Wahiina konungs sem talar til ykkar. Kúahjarðir þessa konungs þekja fjöllin i kringum Basso-Narok, eins vel og maurarnir hræ giraffans. En hvað segir Kali, sonur Wahimakonungs? Hann flytur ykkur þau gleðitíðindi, að hin góða M’zimu kemur til þorps ykkar“. Það var auðséð á kyrrð þeirri sem greip alla, að orð Kalis höfðu verið áhrifarik.

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.