Ljósberinn - 01.04.1953, Blaðsíða 2

Ljósberinn - 01.04.1953, Blaðsíða 2
26 LJDSBERINN Kai Ming var orðinn frískur um morguninn daginn eftir og alveg eins og hann átti að sér að vera. „Einn sannur lifandi Guð hefur heyrt bænir okkar,“ sagði mamma hans. „Nú förum við um borð i kristniboðsbátinn og þökkum Guði.“ Síðan tók hún skurðgoðin niður af hillunni og stakk þeim niður í körfu. „Við brennum þau“, sagði hún. „Þau eru vita gagns- laus.“ — Þegar kunningjakonur þeirra á hinum bátunum urðu þess varar, að þær höfðu tekið guðina niður af hillunni, urðu þær óðar og uppvægar. „Þetta mátt þú ekki gera,“ sögðu þær. „Þetta kemur ykkur í koll. Hver verndar ykkur nú fyrir ásóknum illra anda!“ — „Við óttumst þá ekki,“ svöruðu mæðgurnar. Við trúum á hinn eina sanna Guð. Hann frelsar frá allri synd og varðveitir frá öllu illu.“ — Skurðgoðin brenndu þær um borð í kristni- boðsbátnum og þökkuðu Guði fyrir, að hann hafði heyrt bænir þeirra. — Ging Lin fór snemma á fætur daginn eftir. Hún þaut til bróður síns og ætlaði að vekja hann. En Kai Ming var þá aftur orðinn veikur og gat ekki farið á fætur. — „Flýttu þér að sækja kristni- boðann,“ sagði mamma hans og fór að gráta. Þegar Ging Lin kom með kristniboðann voru vinkonur þeirra frá hinum bátunum einnig komnar. „Vorum við ekki búnar að vara ykkur við þessu,“ sögðu þær. „Hver ósköp geta ekki af því stafað að brenna goðin.“ — „Einn sannur Guð heyrði bænir okkar,“ svaraði kristniboð- inn. „Hann mun enn gera það.“ Síðan bað hún til Guðs: „Góði Guð, sýndu þessum konum mátt þinn og læknaðu litla Kai Ming. Amen.“ Kai Ming opnaði augun og settist upp í rúminu. „Ég er svangur,“ sagði hann. Þegar konurnar sáu þetta, sögðu þær. „Við viljum einnig trúa á einn sannan Guð. Segðu okkur meira um hann og sons hans Jesúm Krist.“

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.