Ljósberinn - 01.04.1953, Qupperneq 10

Ljósberinn - 01.04.1953, Qupperneq 10
34 LJDSBERINN LJOSBERINN ______________________________ Barna- og unglingablað með myndum. — Útgefandi Bókagerðin Lilja, — Ritstjóri Ástráður Sigursteindórsson, kennari. — Utanáskrift: Ljósberinn, Pósth. 276, Rvík. Kemur út sem svarar 12 síðu blaði á mánuði, þar af tvöfalt sumarblað og þrefalt jóla- blað. Áskriftargjald kr. 20.00. Gjalddagi 15. apríl. Prentaður í Félagsprentsmiðjunni h.f. Spurningar: 1. Maður nokkur sigldi til Danmerkur á steini. Hvað kallar þú það? 2. Hvar getur þú sezt, en ég ekki? 3. Hvað á lítil mús eins auðvelt með að draga og stór fíll? Gólfteppið: Þetta á að vera mynd af gólfteppi, sem sett er saman úr ferhyrningum. Frúin, sem á þaö, hefur klippt það niður eins og gólfið er í laginu. Nú vildi svo illa til, að hún varð að flytja í aðra íbúð, og þar er gólfflöturinn jafn á allar hliðar. Hvernig á hún nú að klippa teppið sundur og setja það saman, svo að ekk- ert fari í súginn og enginn ferhyrningur skemmist? Kúlurnar: Ef Eiríkur vinnur fimm kúlur frá Óla og tapar síðan fimm kúlum til Jóns, og Jón tapar fjórum kúlum til, Óla, hve mörgum kúlum hefur Óli þá tapað? SVÖR VIÐ HEILABROTUM I SÍÐASTA BLAÐI: Talnaþraut: Tölurnar geta verið samtals 24. Tannhjólin: Hjólið B snýst öfugt við hjólið A. — Gátur: 1. skeifa, 2. reykháfur, 3. klukka, 4. ofn. — Stafaþraut: Ingunn, Nanna, Guðrún, Unnur, Nína, Nikólína. >rc) 'rs >ri)'O osencíin x. Breytingarnar á blaðinu virðast mælast mjög vel fyrir. En gaman væri að heyra álit fleiri lesenda. Hvað fellur ykkur bezt i blaðinu, hvað finnst ykkur vanta, af hverju vilduð þið fá meira, og hverju fyndist ykkur helzt mætti sleppa? Hvort fyndist ykkur betra að fá stærri blöð og sjaldnar, t.d. tvöfalt blað annan hvern mánuð, eða eins og nú er? — Þessu og ýmsu fleiru erum við að velta fyrir okkur og væri nú gaman, að þið vilduð senda okkur línu um þetta eða annað, sem ykkur er í huga. ★ Munið áskrifendasöfnunina! Segið vinum ykkar frá því, hve mikið og fallegt lesefni þeir geti fengið fyrir einar 20 krónur á ári, ef þeir eru áskrifendur Ljósberans. Eins stór bók og heill árgangur Ljóberans, með jafn miklum fjölda mynda, mundi með venjulegu bókaverði varla kosta undir kr. 50,00. — Nýir áskrifendur fá lika síðasta jólablað, 36 síður, í kaupbæti, og þeir, sem greiða árgjaldið við pöntun, fá auk þess einhvern eldri árgang blaðsins ókeypis. Munið, að gjalddagi Ljósberans er 15. apríl. ♦ SKRÍTLIIR ♦ Hannes: — Hvað er að sjá þig Pétur? Þú ert svo fölur og þreytulegur. Pétur: — Já, það er allt konunni minni að kenna. í hvert sinn sem hún heyrði einhvern hávaða á nóttunni, hélt hún, að kominn væri innbrotsþjófur og vakti mig. Hannes: — Já, einmitt það, en þjófar gera nú engan hávaða. Pétur: — Það sagði ég henni líka. En þá tók ekki betra við. Nú vekur hún mig, þótt hún heyri ekki neitt. ★ ★ ★ Stúdent (sýnir ferðamönnum forngripa- safn): — Þetta er sverðið, sem Bíleam drap ösnuna með. Ferðamaður: — Mig minnir, að hann hefði ekkert sverð, en óskaði, að hann hefði það. Stúdentinn (vandræðalegur): — Já, það er alveg rétt. Og þetta er sverðið, sem hann ósk- aði, að hann hefði. ]

x

Ljósberinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.