Ljósberinn - 01.03.1960, Side 2

Ljósberinn - 01.03.1960, Side 2
Listin að vera hamingju- samur. Einu sinni var konungur. Hann átti einn son, sem hon- um þótti ósköp vænt um. Auð- vitað fékk konungssonurinn allt, sem hann óskaði eftir. Hann átti ljómandi fallegan og góðan reiðhest, og hann átti líka bát til sigla á og margt fleira. Þrátt fyrir þetta, var kon- ungssonurinn ekki ánægður. Faðir hans gerði allt, sem honum hugkvæmdist til þess að gera hann glaðan og á- nægðan, en ekkert dugði. Svo var það einn dag, að spekingur nokkur kom til hallarinnar. Þegar hann frétti þetta um hin unga konungs- son, mælti hann við konung: — Ég skal gera son yðar hamingjusaman. Því næst fór spekingurinn með konungsson inn í eitt af herbergjum hallarinnar og skrifaði eitthvað með hvítu efni á pappírsblað. Síðan fékk hann konungssyni ljós og bað hann halda því bak við pappírsblaðið og vita svo, hvort hann gæti lesið það, sem skrifað væri á blaðið. Síðan fór spekingurinn og krafðist engra launa fyrir starf sitt. Konungssonur gerði sem fyrir hann var lagt, og hvítu bókstafirnir komu þá glögg- lega fram í bláum lit. Þar las hann þessi orð: —■ Elska skaltu Drottinn Guð þinn af öllum huga og öllu hjarta og náungann eins og sjálfan þig. Þessu ráði fylgdi konungs- sonur upp frá þessu og varð hamingjusamasti maður í öllu konungsríkinu. -¥■ * * HreinsaSu gluggann þinn. Langt úti í hafi stóð viti á háum kletti. Hann átti að vara sjófarendur við skerjum og boðum. Eitt kvöld, er vitaverðirnir kveiktu á lömpunum, sáu þeir enga birtu bera út á sjóinn. Þá furðaði stórlega á þessu. Þeir fóru þá að gá innan í lampana og urðu eigi annars varir en að allt væri þar í góðu lagi. En er þeir gengu út fyrir vitann og litu upp í gluggana, sáu þeir, að allar rúður voru þakktar að utan af aragrúa af örsmáum skorkvikindum. Þarna sátu þau svo þétt, að engin skíma komst út um rúð- urnar. Morguninn eftir sáu þeir, að skip hafði farizt á flúðun- um fram undan vitanum. það var skordýrunum að kenna, sem sátu á rúðunum í vitan- um. ★ ★ ★ Konungurinn heyrir til ykkar! Konungur einn í Sýrlandi heyrði einu sinni á tal her- manna sinna fyrir utan tjald sitt. Þeir voru að baktala kon- unginn. Konungurinn lyfti tjald- skörinni með mestu hógværð og ávarpaði hermenn þessa, en þeir urðu lafhræddir. — Hermenn mínir, færið yður dálítið fjær. Konungur yðar heyrir til yðar, sagði konungur. ★ ★ ★ Tíminn og eilífðin. Á fjalli einu suður í Tyrol- héraði í Austurríki stendur minningarspjald. Á spjaldið er mörkuð mynd af hesti fyr- ir vagni og manni í, og er það allt að hrapa ofan í gínandi gjá. Undir myndinni standa þessi orð, sem margur ferðamaður- inn hefur lesið: — Stutt er milli tímans og eilífðarinnar. Klukkan 10 ók ég heiman frá mér, en klukk- an 11 var ég kominn inn í eilífðina. ★ ★ ★ Þakkað Guði. Lúther sagði einu sinni, að léti Guð sólina aðeins koma upp einu sinni á ári, þá yrði haldin fagnaðarhátíð og þakk- arhátíð. En af því að hún kæmi upp á hverjum degi, þá dytti fáum í hug að nokkuð væri fyrir að þakka. 1» LJÓSBERINN

x

Ljósberinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.