Ljósberinn - 01.03.1960, Qupperneq 11
Þegar Þórir litli fór til kirkju
Næstkomandi sunnudag verður barnaguðs-
þjónusta í kirkjunni.
Þannig hljóðaði ein auglýsingin í blöðun-
um. Börnin hlökkuðu svo mikið til, að þeim
fannst vikan aldrei ætla að líða.
Systkinin Þóris litla áttu svo sem auðvitað
að fá að fara. Þau voru svo miklu eldri en
hann. En á sunnudagsmorgun segir hann við
þau:
— Ég fer líka með ykkur.
En þau svöruðu bara:
— Þú, pjakkurinn! Ætlar þú að fara með
okkur til kirkju? Ó, nei, það verður ekkert úr
því. Þú bara sofnar, og við verðum að sitja
undir þér, til þess að þú veltir ekki niður af
bekknum. Þú ert allt of lítill, til þess að fara
til kirkju. Skilirðu það ekki?
Þórir gat ekki leynt vonbrigðum sínum. Tár
runnu niður báðar kinnar.
— Pabbi, krakkarnir vilja ekki, að ég fari
með þeim til kirkju, kveinkaði hann og kast-
aði sér grátandi í faðm föður síns.
Pabbi þerraði tárin af kinnunum og sagði:
— Þau eru svo fljót að hlaupa, að litlir
drengir hafa ekki við þeim, en nú ætlar pabbi
að taka litla drenginn sinn með sér til kirkj-
unnar.
Þá glaðnaði heldur en ekki yfir Þóri. And-
litið ljómaði af gleði.
Litlu síðar sat Þórir í fangi pabba síns í
kirkjunni. Hann horfði í kringum sig. Svo
mörg börn hafði hann aldrei áður séð. Þau
voru víst öll eldri og stærri en hann. Máske
hafa þau líka átt lítinn bróður eða litla syst-
ur, sem þau hafa ekki viljað lofa að fara með
sér til kirkju? Hann var heppinn að eiga góð-
an pabba.
Líklega hefur Þórir verið að hugsa um það,
þegar pabbi allt í einu hvíslaði að honum:
— Nú verður farið að spila á stóra orgelið
þarna uppi. Þá fara öll börnin að syngja um
Jesúm. Það verður gaman.
Þórir glenti upp augun, horfði á orgelið og
spurði af mikilli ákefð:
— Pabbi, hvar er maðurinn sem spilar?
— Hann situr á bekk bak við orgelið.
— Hefur hann verið slæmur?
— Nei, vinur minn. Hann verður að sitja
þar, ef hann á að geta spilað.
Þegar byrjað var að leika á orgelið, fóru
öll börnin að syngja. Þóri þótti það ákaflega
fallegt. Hann tók um hálsinn á pabba sínum
og hvíslaði:
— Þú varst góður, pabbi, að lofa mér að
fara með þér til kirkju.
Það er indælt að eiga góða foreldra og góð
systkini. En enginn er eins góður og Jesús.
Hann sagði:
— Leyfið börnunum að koma til mín.
Og hann blessaði börnin.
Af Þóri getum við lært að vera þakklát
öllum, sem eru okkur góðir, og þakklátust
Jesú, sem elskar öll börn og alla menn jafn
mikið.
líf ÖI ll b H> II
Kristur minn, ég kalla á þig,
komdu að rúmi mínu.
Gjörðu svo vel og geymdu mig,
Guð, í faðmi þínum.
LJOSBERINN
27