Ljósberinn - 01.05.1936, Síða 4

Ljósberinn - 01.05.1936, Síða 4
90 LJÖSBERINN I Fyrsta kristna konan.F Og kona nokkur, guöhrædd, Lýdía að naini, úr Pýatiru- borg, er seldi purpura, hlýddi á, og opnaði Drottinn hjarta hennar, svo að hún gaf gauin að ræðu Páls. Lýdía, er fyrsta kristna manneskjan í Norðurálfu, sem við þekkjum að nafni. Hún var trúrækin. En þegar Páll kom og vinir hans settust við ána, þar sem bænahúsið var, og töluðu við hana, þá opnaði Drottinn hjarta hennar, svo að hún gaf gaum að orðum þeirra, Hún var trúrækin — og varð kristin. Það er sem sé tvent harla úlíkt. Trú margra manna innan kristninnar er ekki annað en einskonar trúrækni. Við dýrkum Guð í náttúrunni, segja þeir; við álítum Guð kærleiksríkan föður; við tilbiðjum ha,nn líka á okkar hátt; við áköllum hann, er neyð ber að höndum, og við erum þakklátir fyrir forsjún hans. Þetta er ekki kristindúmur. En hvers er þar vant? Það er sagt um Lýdíu, að Drottinn opnaði hjarta- hennar. Það er pað, sem með þarf, Kristindúmurinn er mál hjartans. Hjartað verður að opna sig fyrir Jesú og taka fagnandj á móti náðartilboði hans. Þess vegna sjáum vér líka, að nýtt lif með nýjum kristilegum dygðum kem- ur í ljús hjá Lýdíu. Því að eftir að hún hafði verið skírð, bað hún og sagði: »Ei þér álítið mig trúa Drotni, þá gangið inn í hús mitt og takið þar dvöl.« Auð- mýkt, trúlyndi og kœrleikur til vina Drottins eru blóm, sem vaxa í helgum jarðvegi á akri náðarinnar. Lýdía öðlaðist trúna af samtalinu viö Pál og vini hans. Það er gott og bless- unarríkt að tala við trúaða menn um þá hluti, sem heyra guðsríki tiL Olf. Ric, Á, Jóh. 1 verstöð einni á vesturströnd Jút- lands bjó fiskimaður, sem Ma,de Thom- sen hét. Kvæntur var hann, og hét kona hans Karen. Þau áttu þrjú börn. Tvö þau elztu. voru farin að heiman til að vinna fyrir sér, en yngsti sonurinn var enn heima hjá foreldrum sínum. Hann var á fermingaraldri, og hét hann Ant- on. Hann var dugandi drengur og vænn álitum, fagureygur og ljós að yfirbragði. og allt hátterni hans djarfmannlegt og einart. Vetrarkvöld nokkurt, þegar foreldrar hans ræddu um framtíð drengsins þeirra, sagði Mads við son sinn: »Þú erfc léttur í lund, sonur minn, en betur færi, að það skaplyndi þitt leiddj þig eigi til léttúðar. Það er of lítið um kjölfestu í fari þínu. Gættu þess að sigla á réttum kili, þegar þú brátt leggur frá landi út í veröldina. Þá ríður á að spýta í lóf- ana og taka föstum tökum, svo tíminn fari eigi til ónýtis.« »Þá ríður einnig á, að þú hafir Guð í stafni hjá þér. Bið þú og vinn,« bætti móðir hans við. »Já, bæn og vinna er bezta kjölfestan,« sagði faðir hans og kinkaði kollL Þennan vetur fekk Anton léðar marg- a.r bækur í búkasafni sóknarinnar, er fjölluðu um ferðalög og æfintýraleið- angra, Var honum mikil nautn að lestri þeirra. En þær frásagnir, er dýpst hrifu hann, voru, sögur Marryats skipstjóra. Hann óskaði sér, að hann einhverju sinni mætti verða þátttakandi í slíkum at- burðum og athöfnuro sjómannsins. Því var það, að eitt sinn, þegar for- eldrar hans spurðu hann, á hvern hátt

x

Ljósberinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.