Ljósberinn - 01.05.1936, Blaðsíða 33

Ljósberinn - 01.05.1936, Blaðsíða 33
119 LJÓSBERINN Ég’ trúi á Jesúm Krist. Þegar þið sjáið mynd af frelsara ykk- ar, þá virð'ið hann gaumgæfilega fyrir ykkur. Ilann er hinn máttugi frelsari, frelsai’i þinn. Hann kom til okkar, þeg- ai' við vorum skírð. Hann á okkur. Hann hefir keypt okkur með sínu dýrmæta blóði á föstudaginn langa. Enginn er eins góður og ha,nn — enginn er eins rnáttugur og hann. Þú mátt aldrei fara frá mér. Það segir hann nú rétt í því, er þú horfir á myndina af honum. Nei, Drottinn minn og frelsari, frá þér vil ég heldur ekki fara. Til, hvers annars ætti ég að fara? Þú hefir oró hins eilífa lífs. »Minn iistvin kœr, ef aö er spurt, hvort ætli ég frá þér í burt, með Simoni ég' svara: »Þú veitst, minn Herra, ég vil ei |)nö, ég veit ei nokkurn betri stað. Til hvers skal heldur íara? (V. Hr.) Valur. »Æ, gerðu þetta ekki!« h.rópaði Bjarni til slátraradrengsins, sem Iieysti frarn hjá honum, og barði í sífellu misk- unnarlaust veslings, litla, margra hest- inn, sem dró vagninn. Bjarni stóð kyr stundarkorn og horfði ergilega á eftir honum. Iívað er þetta? — Þegar vagn- inn beygði fyrir. næsta húshorn, rakst hann á ljósastólpann, drengurinn datt; úr vagninum, en hesturinn þaut á- fram. Þegar hesturinn loks varð stöðv- aður, hafði hann brotið báða vagn,- kjálkana og vagnkassann. Drengurinn hafði meiðst mikið við fallið. Faðir Bjarna átti litla jörð skamt fyrir utan bæinn. Honum þótti vænt um öll dýr og var þeim góður. Bjarni flýtti sér nú heim til sín og skýrði mjög gramur frá því, sem hann, hafði séö. — »Hesti,num verður kent um alt sam- an, það er ég viss um,« sagði hann næst- um grátandi. Daginn eftir var þessi óþægi hestur boðinn til sölu og faðir Bjarna keypti hann fyrir lítið verð. »Hvílík heimska,« sögðu menn, »hesturinn er óviðráðan- legur og bítur og slær, ef komið er ná- lægt honum.« — »Við verðum svo góðir við hann, að hann verður þægur við okkur, pa,bbi,« sagði Bjarni. Og faðir Bjarna var á sömui skoðun og sagðist mundi fara. að ráðum hans. Hesturinn var néfndur Valur. Áður en langt um leið fóru feðgarnir að nota hann, til aksturs. Þeir gátu látig hann fraa eins hægt og’ þeir vildu og nema staðar er þeim sýndist. Hann kom til þeirra er þeir kölluðu á hann, alalt þá og nuddaði flibanum við þá, er vel lá á honum. Af hverju hafði hann breyst svona? Ekki við hörku, heldur við hina góðu, meðferð. Áður var hann hrakinn, hrjáður og atyrtur, hafði oft verið lam-

x

Ljósberinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ljósberinn
https://timarit.is/publication/362

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.