Nýtt kirkjublað - 30.04.1908, Blaðsíða 3

Nýtt kirkjublað - 30.04.1908, Blaðsíða 3
NÝTT KIRKJUBLAf) 91 gœti, sem fyrst birtast oss fullkomlega, er maðurinn er lát- inn: — „En skyldi það álit á hinum látna ekki vera réttara, gófugra, líkara þvi, hvernig guð almáttugur lítur á mennina?11 Erindið er eigi jafnvel kveðið og nú gerist, en páskahugs- un er í þvi, og kann að verða fleirum huggunarorð: Þvi fleiri sem af vinum vorum verða fluttir í sæluheim, æ ])ví glaðari gleggri sporum göngum vér helveg eftir þeim. Þeir eru blóm á blíðheims strönd, sem blasir við himinfúsri önd. #yí {iá ekki kirkju=blað? ------ [NiBurl.]. Frjálslynd kirkja? — Er ekki mótsögn í sjálfum orðun- um? — Sligar ekki hvort orðið annað? Fer ekki frjálslyndið með kirkjuna? Og kirkjan þá — með frjálslyndið? Og sé nú svo, hvaða erindi á þá frjálslynt kirkjublað? Það er miklu hægra að kasta fram spurningunum en svara þeim. Eg á ekki við dómana frá óvinum alls frelsis i kirkjunni, frá mönnum, sem sjálfir eru ótrúbneigðir, þurfa eigi og vilja eigi um slíkt hugsa, en líta á kirkjuna sem forna, lögbundna stofnun, þar sem alt sé í skorðum og engu megi raska. Slíkir verðir rétttrúnaðarins hafa ávalt verið og eru enn, ekki sízt i lútersku kirkjunni. Eg hefi frernur í huga kristið fólk, sem hræðist frjálslyndið, ekki vegna sjálfs sín, segir það alloft, heldur vegna annara, vegna smælingjanna, sem kunna að hneykslast. Það má ekkert koma opinberlega fram. Allir verða að hægja á sér vegna þeirra. Hér á Iandi er — sem betur fer — varla svo blindur ofstækismaður, að hann játi eigi, að einstaklingurinn geti verið þetta hvorltveggja í senn: frjálslyndur og umburðarlyndur, prófandi og rannsakandi, og þó kristinn maður, góður og gildur í kirkjunni — ef hann hefir sig þar ekki frammi með frjálslyndi sitt og rannsóknir.

x

Nýtt kirkjublað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.