Nýtt kirkjublað - 01.03.1910, Síða 5

Nýtt kirkjublað - 01.03.1910, Síða 5
NÝTT KIRKJUBLaÐ 53 neinu öðru enn ])ví, að æfa sig stöðuglega í kærleikanum, þá láta þeir Jöngun sína til að efla dýrð Iians sem mest, koma fram í því að gagna öðrum sem mest. Þetta sýnir sig í stöð- ugri trúmensku í köllun sinni, liver sem hún er; í ástund- un og vandvirkni í störfum sínum, hver sem þau eru; í notasemi í viðbúð og í góðvild og Ijúflyndi í umgengni allri. Þar sækist enginn eftir hærri verkalaunum eða ávinningi enn sanngjarnlegt er, og enginn leitast við að slíjótast undan þeim útgjöldum, sem honum ber að greiða, leggur heldur hart á sig. Þar ber hver umhyggju fyrir öðrum, því her eng- inn áhyggju fyrir sínum þörfum, — þess þarf ekki, — en enginn dregur sig þó í hlé. Þar gerir hver slíkt er hann má fyrir aðra. Þar er ekki safnað auði með síngirni né harðræði. En safnist hann eigi að síður, er hann notaður til hjálpar í viðlögum og til að efla framfarir í öllu því, er til sannrar nytsemdar horfir. Þar er sífelt leitast við að efla andlegan og líkamlegan þroska manna, gjöra þá fullkomnari og kær- leiksríkari. Þar er það í stuttu máli haft fyrir augum, að allir menn megi verða sönn börn föðursins, sem á himnum er og sannir bræður Jesú Kiists samkvæmt tilgangi hans. Þó að mannlegri skammsýni sé, þar eins og alstaðar, hætt við misskilningi og þar af leiðandi ágreiningi, þá er jafnskjótt komið i veg fyrir hann: þá spyrja rnenn sjálfa sig: Hvað mundi Jesús Kristur nú gjöru í mínum sporum?“ Þá er svarið jafnan auðfundiö, og á þann hátt er kærleikanum borgið. Þar eru allir hógværir og góðgjarnir í viðræðunr og mildir og nærgætnir í dómum um náungann Hafi honum orðið á, þá eru öll tildrög athuguð og tekin til greina áður en myndað er ákveðið álit um mál hans. Það er varast að færa nokkurt atvik til verri vegar, en glaðst við þá von, að hjá hinum breyzka n)uni þó vera góður vilji til að sigra breyskleikann með guðs hjálp eftirleiðis. Og þessi von ræt- ist jafnan, því hin kærleiksfulla meðferð, sem hinn breyski verður fyrir, hefir bætandi og styrkjandi áhrif á hann Þar leggur hver maður alúð á, að láta dæmi sitt lýsa, sem ljós, fyrir öðrum í smáu og stóru. Með þvi uppörfa menn hver annan, jafnvel betur enn með beztu ræöum, — þó þær séu góðar með. Þar er, í einu orði sagt, lögð öll áherzlan á það eitt: að cefast betar og betur í því, að láta sama

x

Nýtt kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.