Nýtt kirkjublað - 01.03.1910, Qupperneq 12

Nýtt kirkjublað - 01.03.1910, Qupperneq 12
60_ _ NÝTT KIRKJÖBLAÐ ____ við sjáandi sáum ekki. Eg spurði hann ])á stundum hvað hann hefði séð, en hann vildi sem fæst um það tala. Þegar hann sá eithvað með sinni innri sjón, var [>að hans vani, að ræskja sig og skirpa. Þegar ég var 6—7 ára gamali, var ég forvitinn eins og önnur börn. Skeði ])að þá einn morgun að gamli Jón ræskti sig og skirpti í meira lagi. Hljóp ég þá upp í kjöltu karls og bað hann að segja mér hvað hann hefði séð, en hann færðist undan því. „Æ góði Jón segðu mér það, ég þarf endilega að vita það„ sagði ég. Lét hann þá loksins eftir niér og sagði „0 — það var óhræsi“ — „Hvaða merking hef- ir það,? hvað skeður þegar þú sér það?“ — „0 — það er nú ekki rnerkur viðburður, hann Jón Hildarson kemur ætið skömmum tíma á eftir“ — „Það er ómögulegt, nú er stór- hríð í dag“ sagði ég. En skömmu síðar var barið á dyr, og reyndist svo, að Jón Hildarson var þá kominn, til þess að sækja meðul til föður mins handa móður sinni. — Líkt þessu bar oft við, en ekki er auðvelt að skilja það samband, að blindur maður sér eiuhverja mynd, sem er fyr- irburður þoss, sem síðar kemur fram, eða það sem ganda fólkið kallaði fylgjur. Þegar ég bjó á Hallgilsstöðum í Fnjóskadal, en síra Björn Halldórsson var prestur í Laufási var vinátta milli okkar, svo við gerðum þann samning fyrir nokkur ár, að ég væri hjá honum 2—3 daga í skamdeginu annan vetur, en hann hjá mér hinn veturinn. Milli heimila okkar var talið að væri '/s úr þingmannaleið. Þegar ég á einni þessari ferð fór frá Lauf- ási heim til mín, komst ég heldur seint af stað um morgun- inn, og skiðafærið var ekki gott, svo komið var fast að dag- setri á seinustu bæjarleiðinni, og byrjuð þykk logndrífa. Dá- litið leiti eða hallandi var vestan við bæinn. Þegar ég kom þangað, kom maður á skíðum á rnóti mér í hríðarúlpu með mývatnshettu, svo andlitið sást ekki, en mér sýndist hann líkj- ast einum vinnumanninum niínum, kallaði ég þvi til hans, og spyr hann, hvort fólkið heima sé orðið hrætt um mig og hvort hann sé að leita mín. Hann ansaði engu, en beygir við fáa faðma frá mér á snið upp i brekkuna. Eg kallaði til hans aftur og spyr: þvi hann svari mér ekki, hvort hann sé að fara, og hvort ekki sé nær að snúa við heim tilmín? Sneri

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.