Nýtt kirkjublað - 01.06.1911, Blaðsíða 11
^ NÝTT KIRKJUBLAÐ 131
lifandi í mér, vil eg meS gleði opna hjarta mitt fyrir orði
guðs, hlýða kostgæfilega á prédikun fagnaðarerindisins og
einnig sjálfur lesa í ritningunni og rannsaka hana. Eg vil
sífelt reynast trúr vorri evangelisku kirkju, sem eg i dag hefi
verið tekinn inn í sem myndugur safnaðarlimur, til Jiess að
drottinn endurleysi sálu mína frá öllu illu og hjálpi mér náð-
arsamlega til síns eilífa himneska ríkis. Amen.
Jatlio prestur i Ki'iln.
d heilagi sdttmdli
millum mín 03 míns guðs, hvcrn cg í skírninni fgrst samdi og í fcrm-
ingunni siðan itrckaði.
Hér með sver eg og heitstrengi, af öllu mínu hjarla,
fyrir þér, þú drottinn guð minn skapari, þú guð minn endur
lausnari, þú guð minn helgari. Fyrir þér þú þríeini guð:
guð faðir, guð sonur og guð heilagur andi, sver eg og heit-
strengi:
1. Að eg skal alla mina æfidaga halda þig einan og eng-
an annan fyrir minn guð og drottin. Eg skal af öllu hjarta
óttast þig og elska, trúa á þig og treysta sem minn föður og
skapara; þinn son Jesúm Krist sem minn endurlausnara og
árnaðarmann; og þinn heilaga anda sem minn helgara og
huggara, alt eftir artikulum þeirrar kristilegu trúar, sem -eg
af mínum barnalærdómi numið hefi, um hverra sannleika eg
er nú sannfærður í hjarta mínu. í þessari trú skal eg og
vil eg, í tráss öllum villulærdómum, stöðugur standa alt til
míns síðasta; og fyrri skal eg lífið láta, en eg afneiti trú
minni og sannleikanum.
2. Sver eg og heitstrengi, að eg skal þig alleinan til-
biðja og ákalla í öllum lífs og sálarnauðsynjum, og láta bæn-
ina til þín vera mina iðuglega æfingu, með þakklæti og lof-
gjörð fyrir allar þínar andlegar og líkamlegar velgjörðir, en
sérdeilis fyrir þinn einkason Jesúm Krist.
Hjartanlegast vil eg þó biðja þig um nauðsynjar sálar
minnar, svo sem um fyrirgefningu syndanna, lifandi trú á
Jesú forþénustu og náð lil að lifa guðlegu líferni. Mín bæn
skal ekki vera munnflapur og hræsni, heldur skal hún fram