Nýtt kirkjublað - 01.01.1912, Blaðsíða 5
NYTT KIRKJUBLAÐ
HÁLFSMÁNAÐARRIT
FYRIR KRISTINDÓM OG KRISTILEGA MENNING
1912
Reykjavik, 1. janúar.
1. blað
þrt þjóðfélag und pinni vörn.
Vort þjóðfélag und pinni vörn
og þínum merkjum standi,
vor faðir, leiS þú landsins börn,
og leys frá öllu grandi!
Lát blessast vora bygð,
lát blómgast frið og dygð,
gef frjáls og farsæl þjóð
hér feðra byggi slóð
í fögru fósturlandi.
F. B.
fið dramótin.
(Kafli úr nýársrœðu).
Innilegasta óskin vor allra á þessum nýársmorgni er að
þetta ár verði oss gott og blessað ár, að því leyti er það eðli-
legt að hugur vor dvelji við ókomna tímann. En endurminn-
ing liðna ársins, já, ekki einungis þess eins, heldur allra liðnu
æfiáranna vorra á ekki alllítinn þátt í framtíðar vonum vor-
um. Margar hugleiðingar hlýtur hún að gefa oss um ástand
vort á þessum áramótum. Eftir því hvernig vér höfum hag-
að ferð vorri hingað til, eftir því fer það að miklu leyti hverj-
ar vonir vér getum gjört oss um framtíðina. Sú alvarlega
spurning hlýtur því að vakna hjá oss, hvernig vér böfum lifað
hingað til; hver tímamót æfi vorrar beina þeirri spurningu til
vor. Hvar ertu staddur kristinn maður, hver ertu sem kristinn,