Nýtt kirkjublað - 01.01.1912, Page 7
NÝTT KIRKJUBLAÍ)
3
sjálfir, hvort vér vi?5 síðustu áramótin hér í heimi getum litið
yfir dáðríkt og guði þóknanlegt lif; getum vér það, þá er oss
gott að hverfa héðan hvenær sem guð vill. Og þér ungu
vinir mínir, þér yngismenn og yngismeyjar sem horfið með
vorhug æskunnar fram á mörg ólifuð æfiár, kappkostið að
lifa svo öll þau ár, hvort sem þau verða mörg eða fá, að
hver áramót i lífi yðar minni yður á stöðugar framfarir í öllu
góðu. Gangið með guð yðar og frelsara í hug og hjarta að
verki köllunar yðar, látið ljós Jesú Krists sannleiksorða
lýsa yður á öllum yðar vegum. Vitið fyrir víst, að
einungis með því að hafa það fyrir leiðarstjörnu yðar, hvað
sem yður mætir, þá verðið þér góðir og nýtir menn.
Vonir vorar hinna eldri manna um góða og farsæla fram-
tíð ættlandsins hér á jörðunni eru bygðar á hinni upprenn-
andi kynslóð, látið þessar vonir ekki bregðast, látið heldur
hvert æfiárið yðar staðfesta þær, þá hittumst vér öll á hinum
mikla nýársmorgni eilífðarinnar á föðurlandinu himneska þar
sem guð verður alt í öllu . . .
__________________ S. St.
fj u ð s r í k i ð.
Eftir Leonhard Ragaz.
Guðsríkið sem Jesús boðaði er alls ekki kirkja. Það er
einmitt svo háveraldlegt. Það er ekki ómakslaust að koma
sjálfum oss og öðrum vel og verulega í skilning um þetta.
Flestum verður það fyrir að taka það bara um einhverjar kirkju-
legar athafnir, þegar talað er um að unnið sé fyrir guðsríki.
Það sé bænahald, sálmasöngur og prédikun, að það sé trúboð
úti i heiðnu löndunum eða heima fyrir í kristninni, að það
sé útbreiðsla heilagrar ritningar eða þá kenning vissra trúarlær-
dóma, sérstaklega um guð og Jesú Krists. En guðsríkið er
enn miklu víðtækara en þetta. Það er svo óendanlega miklu
rýmra en nokkur kirkja, og er umfram alt annað og meira
en orðin tóm.
Hann er að vinna fyrir guðsríkið vindblærinn sern líður
um lög og láð og eins aldan sem rís og fellur. Alt þetta sem
mótar jörðina, fyllir hana lífi, öll náttúruöflin, óteljandi, síslarf-