Nýtt kirkjublað - 01.01.1912, Page 13
NÝTT KIRKJUBLAÐ
9
MeS þeim vopnum er aldrei barist fyrir sannri þjóðar-
heill, heldur gegn henni.
Þar er öllum illvættum haslaður völlur þjóSinni til tjóns,
og á þeim vettvangi hefir líka mörg þjóSin glatað frelsi sínu.
Hver voru tildrögin til atburðanna, sem gjörðust á Is-
landi árið 1262? —
Og grátlegt er þegar heill og gagn þjóðarinnar er haft
að yíirvarpi fyrir þeim hildarleik.
Þá er „viðurstygð eyðileggingarinnar“ komin á helgan stað.
' Það er alvarlegt umhugsunarefni, hvar vér Islendingar er-
um nú staddir í þessu etni.
Sjálfsagt óar oss alla við þeirri tilhugsun, að vér séum
enn ekki vaxnir því sjálfsforræði, sem vér nú höfum, auk
heldur meira.
Það væri líka óttaleg tilhugsun hverjum góðum Islending.
Með meiri bróðurhug, meiri virðing hver fyrir öðrum, í
stuttu máli meiri kærleika í allri starfsemi vorri fyrir þjóð
vora og ættjörð firrum vér oss þeirri tilhugsun.
S. St.
jfristilegt íélag ungra manna.
Fá ár i sögu K. F. U. M. hér á landi hafa verið auð-
ugri að blessun og framför bæði út á við og inn á við, en
þetta ár hefir verið síðan í nóvember i fyrra.
Ber þar margt til. Það hefir verið sýnilegur þroski á
mörgum svæðum og merkjanleg guðs blessun hvílt yfir starfinu.
Yngsta deildin, fyrir drengi 10—14 ára, hefir blómgast
svo mjög að undrun sætir, I henni eru yfir 300 drengir og
fundarsókn hin besta. Það er lif og fjör á fundum og hjá
mörgum drengjum hefi eg orðið var við einlæga viðleitni að
lifa félagshugsjóninni samboðið. Tólf unglingar starfa með
mér i þeirri deild og hafa lagt inn í starf silt einstaka alúð
og áhuga, kærleika og fórnfýsi. — Hafa þeir sinn bæjarhlut-
ann hver til umsjónar og hafa unnið bæði kærleika og virð-
ingu drengjanna.
I unglingadeildinni eru um hálft annað hundrað ung-
lingar 14—17 ára, Það er alvara og einlægni hjá mörgum