Nýtt kirkjublað - 01.01.1912, Side 14
10
NÝTT KIEKJÖBLAÐ
og vaxandi kristilegur þroski hefir komið í ljós í lífi margra.
Fundarsókn ekki eins góð og í yngstu deild og veldur þvi
það, að meir en helmingur allra deildarmanna er á kvöldskól-
um og í kenslutímum, eða þá eitthvað bundnir á annan hátt.
Um þessar mundir er að myndast 12 pilta „úrval“ til þess að
starfa í þessari deild, og vona eg að nú komist deildin inn á
nýja framfarabraut.
I höfnðfélaginu eru á annað hundrað félagsmenn, og er
þar meginstyrkur félagsins. Þeir bera byrðarnar og þaðan
koma starfendurnir við hinar deildirnar og í félagsstarfinu
yfir höfuð.
Bólcasafn félagsins er orðið mjög svo prýðilegt undir
stjórn sérstakrar bókasafnsnefndar, sem hefir unnið með mikl-
um dugnaði að þrifum þess. Bókasafnið er mjög vel notað í
útlánum og lestri. Á þriðja þúsund bindi voru lánuð út í
fyrra. Islendingasögur sjaldan inni.
Fyrir utan hið hreint kristilega hafa verið ftuttir margir
frœðandi fyrirlestrar til fróðleiks og menningar.
Sumarlíf var með mesta móti í sumar sem leið. Það
eru 2 fótboltafélög innan félags og var að þeim mikil bless-
un, því samlífið var svo fagurt og gott meðal piltanna, enda
er leikurinn vel lagaður til sjálísaga og þroskandi fyrir hug-
ann og limaburð. — Listfengnin og samleikur stendur þó
mjög til bóta.
Fjöldi af félagsmönnum var fjarverandi i sumar eins og
vant er. Þeir sem heima voru í bœnuni og fengu sumarfrí
í nokkra daga, hrestu sig á einhverju ferðalagi; þnnnig fóru
3 fótgangandi til Geysis og Gullfoss, og þar um sveitir til
Ölfusár og yfir Hellisheiði heim. Tveir fóru til Reykjaness
gangandi o. s. frv.
Verslunarmenn og handiðnamenn höfðu í fyrra vetur sér-
fundi tvisvar í mánuði hvor flokkur, og var þar margt gott
erindi flutt, en óvíst er hvort tími er kominn til stéttarstarfs
innan félags enn þá. — Skólapiltaílokkurinn gengur vel; hafa
þeir sérfundi tvisvar í mánuði og taka þá ýmsa ufanfélags
skólabræður með sér.
Það háir oss mjög að vér eigum ekki leikfimishús handa
meðlimunum, umsókn um leikfimishús annarstaðar misheppn-