Nýtt kirkjublað - 01.01.1912, Síða 15
NÝTT KIRKJUBLAÐ 11
aðist. Vonandi getum vér komið upp leikfimishúsi síðar meir,
áður en langt um liSur.
Þetta eru nú helstu drœttirnir í starfi félagsins í hinu
ytra lífi. — —
Fyrir utan Reykjavík hefir komið upp félagsskapur á þrem
stöðum:
A Akranesi stofnaði skógfræðingur Sumarliði Halldórs-
son félag og er það nú í 2 deildum og blómlegt mjög eftir
aldri, og gefur hinar bestu vonir. Hefir prófasturinn á Akra-
nesi verið því mjög hlyntur og hlúað að því vel. Eru nú í
því um 70—80 meðlimir.
í Hafnarfirði stofnaði síra Þorsteinn Briem félag með
fermingardrengjum frá fyrra ári. í haust var svo opnað fyrir
aðra og eru nú í unglingadeildinni 46 meðlimir, og í yngstu
deild 30, og er mikil ánægja að starfa þar.
A Seltjarnarnesi er líka lítið félag með hér um bil 20
meðlimum og er það mjog efnilegur hópur. — Seltirningar
hafa verið mjög góðir við oss og höfum vér haft frítt fundar-
hús í Barnaskólanuin. — —
Best af öllu á liðna tímanum hefir þó bœnavikan ver-
ið, Hún er haldin ár hvert aðra vikuna í nóvember og er
þá talað og beðið á hverju kveldi alstaðar í heiminum um
sama efni, sem alþjóðanefnd félagsins leggur fyrir. 1 ár var
beðið um aukinn krafl guðs anda i lífi og starfi félagsins. —
Vér höf ðum hér svo góðar stundir á hænavikunni, að eg lield
að vér aldrei höfum haft eins góða bænaviku nokkru sinni hér.
Félagið þakkar fyrst guði og þar næst öllum góðum mönn-
um, körlum og konum, sem hafa sýnt oss liðsemd og kær-
leika í oi'ði og verki.
Reykjavík 30. nóv. 1911.
Fr. Friðriksson.
Kristilegt félag ungra kvenna.
Blaðið gat eigi að þessu sinni flutt yfirlit yfir byrjunar-
sögu þess félagsskapar, hér á landi, en vonar að geta gjört
það næst,