Nýtt kirkjublað - 01.04.1912, Page 2

Nýtt kirkjublað - 01.04.1912, Page 2
74 _ NÝ'IT KIRK.TUBLAT) Eg man þaS enn vel, hve faðir minn talaði þýtt og inni- lega i kirkjunni og hver áhrif það hafði. Eg man það á sumrum að oft gat kirkjan eigi rúmað alla, sem komu. Eftir fráfall föður míns breyttist þetta algjörlega. Menn sóttu kirkju í Klausturhólum vel tvo fyrstu sunnudagana eftir að hinn nýi prestur korn; en svo kom breytingin. Líkt var það á Búrfelli og Ulfljótsvatni, er þá lá undir Klausturhóla- prestakall. Þetta var áreiðanlega eigi því að kenna, að kirkjurnar stóðu kyrrar í Klausturhólum og á Búrfelli. Það er eigi heldur því að kenna, að kirkjur eru nú illa sóttar i Grímsnesinu. Kirkjurækt Grímsnesinga hefir langmest farið eftir því, hvernig prestar þeirra hafa verið. Svo er það víðast á Islandi og um öll kristin lönd. Meiri hluti Grímsnesinga notaði eigi vel atkvæðisrétt sinn við síðustu prestskosningu, er þeir höfnuðu séra Kjartani Helgasyni, sem án efa var hinn langbesti, er í kjöri var. Þetta er nú sem stendur ógæfa Grímsnesinga í kirkju og kristindómsmáli þeirra. Það hefnir sín að nota atkvæðisrétt sinn illa og að breyta eins og óviti. Og þessu léttir eigi þótt Mosfellskirkja, Klausturhólakirkja og Búrfellskirkja verði lagðar niður og ein kirkja reist i þeirra stað að Borg. Þó kann það að vera, að fremur kunni að koma svo sem tíu manns, ásamt forsöngvara og meðhjálpara, úr þremur sóknum að Borg, svo að messufært yrði þar oftar en nú um stundir. Það kann líka að vera að sóknarmenn eigi hægra með að vita, hvort prestur muni koma til kirkju, ef ein kirkja væri í stað þriggja. En er nokkur veruleg bót fengin með þessu á kristindómslífi safnaðarins? Eg sé það ekki. Það er óhamingja íslands að þjóðfélagið er svo lítið og atvinnuvegirnir svo fáir, að stundum gerast þeir menn prestar eða embættismenn í öðrum greinum, sem hafa eigi hæfileika til þess, þótt þeir séu færir til annars. Hvernig á þá vel að

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.