Nýtt kirkjublað - 01.04.1912, Qupperneq 6

Nýtt kirkjublað - 01.04.1912, Qupperneq 6
78 NÝTT KIRKJUBLAÐ bága við það. Auk þess vissi Jesús ekki hvaða dauða- daga hann gæti átt í vændum, þar sem annarsvegar voru jafngrimmir fjandmenn og þeir sem hér unnu á móti honum, gjörsamlega blindaðir af trúarofstæki. Að Jesús aftur á móti haíi verið hræddur við sjálfan dauðann, hræddur við að deyja, er hlutur, sem ekki nær nokkurri átt, og enginn sá er nokkuð þekkir til hinnar hugprúðu sálar, sern í Jesú bjó, getur ætlað honum. En hvað getur það þá verið, sem fyrst og fremst gjörir honum lífið svo ákjósanlegt á þessari stundu? Það getur ekki, nema þá að mjög litlu Ieyti, verið tillitið til eigin per- sónu hans, sem veldur hinu mikla ölduróti í sálu hans. Nei, eg held það sé fyrst og fremst tillitið til starfsins, sem hann hefir verið að vinna, og faðirinn hafði beint sent hann að leysa af hendi, — starfsins sem hann vissi að til var stofnað af kærleiksríkri og föðurlegri umönnun fyrir bræðrum hans hér á jörðu, og þá um leið tillitið til þeirra, sem hann elskar svo heitt og innilega og þráir svo heitt og innilega að sjá ganga á guðs vegum sem elskuleg og hlýðin guðs börn. Þetta sannkallaða líknar-starf hans var aðeins í byrjun. Ein- ungis örfáir menn höfðu enn fengist til að sinna köllun hans og hinir helstu þeirra voru vinirnir hans, sem sváfu þarua í garðinum skamt frá, — gátu ekki vakað með honum eina stund! Væri það furða þótt vaknað hefði í sálu Jesú, nú er hann sá dauðann nálgast, spurningar eiris og þessar: Er ekki úti um málefni guðs ríkis ef eg verð að hverfa héðan eftir svo stuttan starfstíma? Hrópar ekki dauði minn á þessari stundu út yfir heiminn: Alt þitt æfistarf er vegið og léttvægt fundið, dæmt ónýtt af guði sjálfum! Öllu tilkalli þínu til að vera guðs sonur, til að vera hinn fyrirheitni Smurði drottins, því er hér mótmælt af guði sjálfum ! Eða hvernig getur nokkur búist við, að hin veika trú þessara fáu Iærisveina hans fái staðist slíka eldraun ? Hver getur trúað fagnaðarerindi hans um takmarkalausan kærleika guðs, ef þessi sami guð lætur það viðgangast, að óvinirnir, — að „vald myrkranna“, sem hann hefir i guðs nafni verið að berjast á móti, verði ofan á? Því að hvað er það annað en að vald myrkranna gangi sigri-

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.