Nýtt kirkjublað - 01.04.1912, Page 7

Nýtt kirkjublað - 01.04.1912, Page 7
79 NÝTT KIRKJUBLAÐ hrósandi af hólmi, ef hann er nú látinn hniga í valinn í blóma lífsins? Þessar og þvílíkar hugsanir gjöri eg ráð fyrir, að haíi valdið hinu mikla ölduróti i sálu Jesú i Getsemane. Tilhugsunin til þessa gjörir honum það ákjósanlegra að fá að lifa áfram nokkra hríð — ef mögulegt er. En að lifa á- fram er fyrir Jesúm sama sem að starfa áfram, — starfa áfram að því að opinbera mönnunum hjartaþel guðs, visa þeim leiðina í íöðurfaðm guðs, kunngjöra þeim heilagan vilja guðs, — í fám orðum: hjálpa þeim lil að verða guðs ástfólgin börn. Með alt þetta í huga, með eilífa velferð mannanna i huga, biður frelsarinn: „Faðir minn, ef mögulegt er. —“ Og hve er það svo lærdómsríkt að virða fyrir sér hvernig Jesús biður. Þegar hann segir: „Faðir minn ef mögulegt er“ — þá felst óneitanlega i orðunum hugsunin: „ef þú getur, ef þú með nokkru móti getur.“ En þegar i næstu setningu eins og tekur Jesús sig á því, að hér er ekki um það að ræða hvort guð geti — því að guði er alt mögulegt — held- ur eingöngu um það, hvort guð vilji, hvort vilji hans leyíi það; en í sömu andránni sem hann finnur, að hér er um það að ræða hvað guðs vilja fái samrýmst, þá horfir málið undir eins öðruvísi við honum, og hann flýtir sér að bæta við: „Þó ekki sem eg vil“. Það er eins og hann sé á glóðum um, að óskin sem liann hefir borið fram, geti orðið til þess að hrinda föðurnum frá sér; þess vegtia flýtir hann sér að bæta við: „Þó ekki sem eg vil, heldur sem þú vilt“. Eftirtektavert er það líka hvernig sjálf bænin breytist hjá Jesú. Fyrst segir hann: „Faðir minn! ef mögulegt er, þá fari þessi bikarfram hjá mér“ — hér er tífsþráin sterka, frumtónn bænarinnar. En i annað skiftið segir hann: „Ef þessi bikar getur ekki farið fram hjá mér án þess eg drekki hann, þá verði þinn vilji;“ — hér er undirgefnin orðinn frumtónn hennar. Envér sjáum þá líka, að öldugangurinn í sálu Jesú eins og smástillist, angistar-ofsinn er að hverfa þaðan, friðurinn aftur að halda innför sína í sálu hans. Hvað mun hafa ílutt honum friðinn? Vafalaust ekkert annað en fullvissan, sem nú rennur upp í sálu hans, sann- færingin sterk og óbifanleg um að ]tað sé áreiðanlega vilji föðursins, að hann eigi nú að að hætta að starfa og nóttin

x

Nýtt kirkjublað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.