Nýtt kirkjublað - 15.10.1914, Síða 3

Nýtt kirkjublað - 15.10.1914, Síða 3
NÝTT KIRKJTJBLAÐ 235 mikil vandaspurning, hvort Jesús vœri fremur guð eða mað- ur. Nú skiljum vér það, hvernig sú trú var sameiginleg gyð- ingdómi og kristindómi, jafnt kend í Iiinu gamla og hinu nýja testamenti, að maðurinn er guðs ættar og afsprengi, skapað- ur í hans mynd og gæddur hans anda, og því er það að myndar guðs er að leila í manninum, eins og líking föðurs- ins kemur fram i barninu. L. A. íhrifageislariiir. Mannsmótið er öðrum þræði verk sjálfra vor, verk hvers eins um sig. Maðurinn verður það sem hann vinnur og hugs- ar. En margt kemur og utan að og mótar. Það eru áhrif- in frá öðrum mönnum. Það er mikið íhugunarefni þetta fyrir oss alla, að frá oss stafa út til annara, hvort sem vér viljum það eða viljum ekki, hvort sem vér vitum af því eða oss er það dulið, — að frá oss stafa áhrifa-geislar til annara manna alt í kring til góðs eða ills. Þér finst að þú gerir svo sem ekkert til þess með orð- um eða verkum, en samt geta áhrifin frá þér orðið þau, að auðveldara er fyrir þá, sem i kring um þig eru, að breyta vel og eitthvað ófýsilegra fyrir þá að gjöra það sem ilt er. Áþreifanlegustu áhrifin frá Kristi er andlegt sjálfstæði, sem finnur og getur greint hið rétta. Og þá er alt steypu- mót svo andstætt kristnu luwdarfari. Hver verður sjálfur að finna til þess og dæma um það, hvað hann má gjöra og láta ógjört, hvað hann má lesa og hjá Iiverju hann á að sneiða, hvar hann má koma, og hvaða staði hann á að forðast, hverj- um málum hann á sinna og hverjum eklci. Alt er þetta undir eigin dómi hvers eins. En kristinn maður finnur þó áhrifavaldið mikla frá hon- um, sem hann vill þjóna. Það er hið fullkomna lögmál frels- isins, sem postulinn talar um. Hafi kristnir menn, þ. e. kristilega breytandi menn, vor á meðal eigi nokkuð áhrifavald út frá sér, hver á sínu svæði,

x

Nýtt kirkjublað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Nýtt kirkjublað
https://timarit.is/publication/364

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.