Nýtt kirkjublað - 15.10.1914, Qupperneq 8
240
NÝTT KIRRJUBLA©
en vinna tafist vegna stríðsins. Yélinni verður komið fyrir undir
kór. Engin vissa er um það livenær vélin kemur, og ekki verður
málað á þessum tíma árs fyrri en vélin kemur. Horfir því eigi
vænlega um safnaðarnot kirkjunnar nú um sinn.
Ritstjórn Sameiningarinnar
verður framvegis, samkvæmt ráðstöfun síðasta kirkjuþings, í
höndum kirkjufélagsforsetans síra Björns B. Jónssonar og síra
Guttorws Guttormssonar.
gýtt Ijfirkjublað óskar gáðs vetrar.
Blessað sumarið er ab kveðja okkur og skilur nokkuð
ójafnt við bygðir landsins, litlu minnur en sumarið í fyrra.
Og mikill hluti landsins á um sárt að binda frá hinum langa
og þunga vetri síðast. Og nú bætast við margir örðugleikar
af völdum styrjaldarinnar, og eru heldur kvíðvænlegar horfur.
Vér viljum treysta því, að guð hjálpar þeim sem reyna
af góðum vilja að hjálpa sér sjálfir með greind og orku, og
í því trausti viljum vér vinna og ganga mót skammdegis-
myrkrinu og óblíðu vetrarins, bíðandi birtu og hlýju af nýju.
Gef oss, ó guð, ljós og yl frá þér á vetrinum i orði þinu,
í allri lífsreynslu vorri og í vinasambúð heimilanna.
Varðveit land vort og þjóð, himneski faðir, ft-á slysum
og óförum, og lát oss færast nær þér á þessum vetri, hvað
sem fyrir kemur, og hvoru megin sem vér kunnum að líta
sumarljós aftur, lát oss færast nær þér við hönd hans, sem
einn getur leitt bræðurna til þín.
Með þeirri bæn viljum vér ganga inn í árstímann nýja
og óska hverir öðrum góðs vetrar.
Itjarmi, kristilegt heimilisblað. Kemur út tvisvar í mánuði. Verð
1 kr. 50 au., í Ameríku 75 cent. Ritstjóri Bjarni Jónsson kennari.
Breiðahlik mánaðarrit til stuðnings íslenskri menning. Ritstjóri
sira Friðrik J. Bergmann, Winnipeg. — Verð 2 kr. hér á landi. —Fæst
hjá Guðbirni Guðmundssyni prentara í ísafold.
Sameiningin, mánaðurrit hins ev.lút. kirkjuf. I§I. í Vesturheimi.
Hvert númer 2 nrkir. Verð hér á lnndi kr. 2,00. Fæst hjá kand.
Sigurb. Á. Gíslasyni í Rvk.
_____________Ritstjóri: ÞÓRHALLUR BJARNARSON. _____
F ólagsprentsmiðj an.