Fréttablaðið - 10.11.2009, Blaðsíða 12
12 10. nóvember 2009 ÞRIÐJUDAGUR
Íslandspóstur er með einkarétt á
dreifingu á pósti undir 51 grammi.
Í þann flokk falla nær öll jólakort
og gluggapóstur. Einkarétturinn
verður afnuminn á nýársdag 2011.
Jón Aðalsteinn Bergsveinsson sett-
ist niður með Hannesi Hannessyni,
framkvæmdastjóra Pósthússins.
„Í dag geta neytendur ekki valið eða gert verð-
samanburð um hvort þeir sendi nafnamerktan
póst, svo sem markpóst á ákveðinn hóp, með
Íslandspósti eða Pósthúsinu, nema þeir séu
með póst sem er 51 gramm eða þyngra,“ segir
Hannes Hannesson, framkvæmdastjóri Póst-
hússins.
Pósthúsið hefur síðustu misserin verið
að búa sig undir afnám einkaréttar á pósti
upp að fimmtíu grömmum að þyngd. Íslands-
póstur hefur farið með einkaréttinn fyrir
hönd ríkisins síðastliðin níu ár ásamt rekstri
pósthúsa og útgáfu frímerkja. Þess má geta
að hlutfall bréfa undir fimmtíu grömmum að
þyngd er milli 85 og 90 prósent af heildar-
magni bréfapósts.
Tilskipun Evrópusambandsins (ESB) um
afnám einkaréttarins tekur gildi á nýárs-
dag 2011, einnig hér á landi. Hannes segir
Pósthúsið, sem meðal annars dreifir Frétta-
blaðinu, hafa gert margt til að undirbúa jarð-
veginn fyrir samkeppni á póstmarkaðnum.
Sjálfur kom hann að rekstri fyrirtækisins á
umbrotatímum í lok árs 2006 þegar fyrirtækið
glímdi við rekstrarerfiðleika.
„Við endurskipulögðum reksturinn með
markvissum aðgerðum. Endurskipulagning
dreifikerfisins var mikilvægust og við höfum
endurhannað dreifingarkerfið í tvígang auk
þess sem töluverðar breytingar á dreifingu
Fréttablaðsins hafa verið innleiddar,“ segir
Hannes. Í endurskipulagningunni fólust sárs-
aukafullar uppsagnir haustið 2008 þar sem
allir starfsmenn fyrirtækisins fengu upp-
sagnarbréf. „Nú er eftir hópur einarðra ein-
staklinga sem hefur gengið í gegnum súrt og
sætt og trúir á fyrirtækið,“ segir Hannes.
Hjá Pósthúsinu starfa um sex hundruð
manns, þar af um fimm hundruð blaðberar,
sem sinna dreifingu á Fréttablaðinu og öðrum
pósti á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Þá
dreifa bílstjórar Pósthússins Frétta blaðinu
og öðrum pósti á nóttunni, auk þess að dreifa
fyrirtækjapósti og tímaritum á daginn á
höfuð borgarsvæðinu, Akureyri og helstu þétt-
býlisstöðum.
Hannes segir nokkra þætti hafa valdið því
að Pósthúsið varð að sækja fram. Í fyrsta lagi
hafi Samkeppniseftirlitið bannað sameigin-
lega prentun og dreifingu Fréttablaðsins og
Morgunblaðsins í fyrra, auk þess sem dreif-
ing á fjölpósti hafi dregist saman um fimmtíu
prósent eftir efnahagshrunið.
Niðurstaðan var sú að hefja dreifingu
á nafnamerktum pósti, pósti sem einka-
leyfi hvílir ekki á. Hafist var handa við að
kynna nýja þjónustu hjá þeim fyrirtækjum
og félagasamtökum sem standa í útgáfu. Nú
hefur stór hluti séð hag í að láta Pósthúsið sjá
um dreifinguna.
Hannes bendir á að mikilvægur hluti starf-
semi Pósthússins sé að gera gæðakannanir á
eigin dreifingu, það er nafnamerktum pósti,
fjölpósti og Fréttablaðinu. Hringt er á hverj-
um degi í slembiúrtak íbúa í þeim hverfum
sem Pósthúsið sinnir og spurt hvort dreifing
hafi skilað sér. Gæðakönnunin hefur leitt í
ljós að 96 prósent alls ónafnmerkts pósts skila
sér og 99,5 prósent af nafnamerktum dreif-
ingum rata rétta leið. „Undirbúningur fyrir
afnám einkaréttar á bréfapósti er því hafinn.
Það hlýtur að vera öllum neytendum til góðs,“
segir Hannes.
Pósthúsið tilbúið í samkeppni
um jólakortin eftir rúmt ár
HANNES HANNESSON Fyrir jólin 2011 geta landsmenn valið á milli tveggja fyrirtækja um dreifingu á
jólapóstinum. Framkvæmdastjóri Pósthússins segir fyrirtækið hafa undirbúið jarðveginn vel fyrir afnám
einkaréttarins og flaggar nýju vörumerki í tilefni þess. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI
Einstaklingar senda langmest póst rétt fyrir
jólin. Nú kostar á bilinu 70 til 80 krónur að
senda meðalkort innanlands hjá Íslandspósti.
Árið 2000 kostaði á milli 40 til 50 krónur að
senda eitt jólakort. Verðið hækkaði einu sinni
á ári fram til maí í fyrra. Það jafngildir 60 pró-
senta hækkun. Síðan hefur það ekki hækkað.
Ætla má að fjölskyldur sendi á bilinu 50
til 100 jólakort ár hvert og getur sendingar-
kostnaður því numið allt að átta þúsund
krónum miðað við hundrað jólakort.
JÓLAKORTIN Á SAMA
VERÐI OG Í FYRRA
FRÉTTAVIÐTAL: Samkeppni á póstdreifingarmarkaði árið 2011
FRÉTTAVIÐTAL
JÓN AÐALSTEINN BERGSVEINSSON
jonab@frettabladid.is
! "
!#$ %
&
'()
*+ +)
%
,)
$
-. +)
/ ) -
0
*+)1 23 1 4
+)1 5
.) 6
.
)7
!
/4/ /48
/4/
/49 +
/4:
6 & . 7
/44
/4;
/4;<4 #$
= .
+. )
+/ )
4 & +
! "
!+ )
>>>
??(@(((% + )
A
/ ) 4 +BC
DBE(F3
4
??(@(((B*G??(@(E(B>>>/4B/4A/4
! "
!3 94$; +HI((D
! 0 4 ,94$ +HI((?
/43 #$-2 ) ! "
!