Tímarit iðnaðarmanna


Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1933, Qupperneq 5

Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1933, Qupperneq 5
T í M A R I T IÐN AÐARM ANNA dráttarbrautir. Dvaldi hann víða í Noregi og fór siðan til Kaupmannahafnar. Af þeirri ferð varð þó ekki beinn árangur, því skip voru hér of fá og smá til þess að dráttarbraut gæti bor- ið sig. Bjarni hefir ætíð verið reglusamur og góð- ur heimilisfaðir, enda notið ágæts stuðnings lijá konu sinni Guðrúnu Magnúsdóttur frá Gálmarstöðum. Eru þau hjónin enn vel ern og fylgjast með hinum margvíslegu framförum nútimans. Bjarni Einarsson er einn af stofnendum Iðnaðarmannaf jelags Akureyrar. Var samfleytt 10 ár í stjórn þess og gjaldkeri og liefir ætið átt drjúgan þátt i starfsemi fjelagsins. Hann var nú um áramótin kosinn heiðursfjelagi þess. S. Sigtryggur Jónsson, byggingameistari. er fæddur 25. nóv. 1862 að Sörlastöðum í Eyja- firði. Ólst bann þar upp með foreldrum sin- um Jóni Sigfússyni og konu hans Steinvöru Jónsdóttur, þar til er þau fluttu bú sitt að Espi- lióli 1876. Var faðir Sigtryggs smiður góður og lærði hann fyrst smíðar i föðurgarði en síðar hjá Þorgrimi Austmann til 1879 að hann fór til Kaupmannahafnar til frekara náms. Kom hann heim aftur árið 1885. Bygði hann þá i- búðarhús á lbðurleyfð sinni, Espihóli og bjó þar rausnar búi til 1900 að bann fluttist til Akureyrar. Tók bann þá að stunda smíðar af miklu kappi og hefir bygt fjöld liúsa á Akur- eyri og viða um Norðurland. Má sérstaklega benda á Gagnfræðaskólahúsið á Akureyri (nú Mentaskóla Norðurlands) sem að hann bygði 1902, og mun hafa verið síðan stærsta og veg- legasta timburhús á Islandi. Sýndi það glögt stórhug og áræði Sigtryggs, að taka slíkt stór- hýsi í ákvæðisvinnu. Hann hefir jafnan leyst allar sínar smíðar prýðilega af hendi og heldur viljað liða fjárhagslegt tjón, en að vita til þess að nokkuð væri vangert eða óvandlega frá ein- bverju gengið. Marga smíðanema befir Sigtryggur haft við nám. Starfa nú margir þeirra á Akureyri en aðrir eru dreiyfði út um Norðurland. Á siðari árum hefir Sigtryggur aðailega starfað á vci 1 - stæði og kom hann sér snemma upp trjesmíða- vjelum. Sigtryggur .Tónsson liefir starfað i Byggingar- nefnd Akureyrar í 32 ár samfleytt, og hefir ný- lega látið af því starfi. Hann hefir mjög lengi setið i niðurjöfnunarnefnd og sáttanefnd. I skólanefnd Iðnaðarmannafjelagsins hefir Sig- tryggur starfað í fjöldamörg ár og gerir það enn. Hann var mörg ár i stjórn Klæðaverk- smiðjunnar Gefjun og liefir ætíð reynst hinn aðgætnasti og ötulasti starfsmaður. 1888 kvæntist Sigtryggur hinni mestu mynd- ar og sómakonu Guðnýju Þorkelsdóttur frá Flatartungu en misti hana 1907. Eignuðust þau hjónin 5 syni. Eru þrír lifandi og allir lands- kunnir athafnamenn: Jón vélfræðingur í Kaup- mannahöfn, Hjalti verksmiðjustjóri á Akureyri og Ingólfur heildsali í Reykjavík. Tóku þeir sjer allir ættarnafn af föðurleyfð Sigtryggs, Espibóli í Eyjafirði. Sigtryggur Jónsson er einn af stofnendum Iðnaðarmannafjelags Akureyrar og hefir jafn- an verið ötull oog áhugasamur meðlimur þess. Sjerstaklega hefir hann látið til sin taka skóla- mál félagsins og húsabyggingamál. Um síðustu áramót var hann kosinn heiðursfélagi þess. S. Davið Sigurðsson, húsasmiðameistari. er fæddur 7. júlí 1862 að Ivristnesi i Öngulstaða- hreppi í Eyjaf jarðarsýslu. Er sú jörð fyrir löngu síðan lögð í eyði. Foreldrar Davíðs voru þau hjónin Sigurður Sigurðsson og Sigriður Hall- grímsdóttir. Þegar Davíð var ársgamall fluttust foreldrar hans að Sigtúnum í Öngulstaðahreppi, og ólst hann þar upp til 18 ára aldurs. Sigux-ð- ur faðir Iians dó árið 1879, og ári síðar brá Sigriður búi, og fluttist Davíð þá að Ytra- Laugalandi á Staðarbygð, til Jóns Ólafssonar lircppstjóra, er þar bjó þá, og var Davíð vinnu- maður þar í 2 ár. Vorið 1885 var námstími Dvíðs á enda. móðurbróður sins, Árna timburmanns á Gai-ðsá. Var Árni smiður góður og orðlagður fyrir vand- virkni. Hjá honum dvaldi Davið i 3 ár; gekk [ 3 ]

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.