Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1933, Síða 7

Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1933, Síða 7
T 1 M A R I T IÐNAÐARMA NNA að finna orðum mínum stað, skal jeg segja nokkuð frá því, hvar vjer stöndum nú með þessa iðngrein vora: FjTsta vjelsmiðjan lijer á landi var sett á fót á Seyðisfirði 1907, vjelsmiðja Jóhanns Uanssonar. Hjer voru smiðjur þeirra Gísla Finnssonar, Rjarnlijeðins og fleiri smátt og smátt að auka við sig áliöldum, uns Hamar reis upp af smiðju Gísla árið 1918 og Hjeðinn af smiðju Rjarnhjeðins 1922. A Þingeyri setti Guðmundur Sigurðsson upp vjelsmiðju um svipað leyti, og fjöldi af smæi’ri smiðjum er hæði lijer, á Akurevri og víðar um land, með meira og minna fullkominn úthúnað áhalda og vjela. En mestar framfarirnar í þessari iðngrein eru vitanlega hjá stærri vjelsmiðjunum. Hafa þær lekið upp smíði nýrra hluta, sem áður voru ávalt fengnir frá útlöndum. Þannig byrjaði vjel- smiðjan Hamar snemma að smíða eimkatla af ýmsum stærðum, bæði fyrir þurkliús, lifrar- hræðslur og bakari. Síðan vindur allskonar, fyrir reknet, snurpinætur o. fl. Hamar setti einnig upp fyrstu steypusmiðjuna í stærri stil, bæði fyrir rauðmálma og járn. Hefur liann steypuofn, sem tekur % tonn í einu og getur því smiðjan steypt stykki, sem eru Vá tonn að þyngd. Önnur stypuáliöld eru blásari fyrir ofn- inn, sandblásturstæki til fágunar, loftþjettir (Kompressor), lireinsitæki, sandsigti, slípivjel o. fl. Steypir smiðjan nú flest, sem fyrir kem- ur af smærri munum úr járni og rauðum niáhnum, (eir, látúni o. fl.), og hefur um skeið gert ristar í skip, kabaldósir, símaskápa o. fl. Af öðrum áhöldum má nefna 8 rennibekki.þar af 3 sjálfvirka, og einn þeirra með 4,2 m. renni- lengd, 37,5 cm. pinolhæð, 110 cm. breidd i hekklægðinni. Getur sá bekkur tekið sveifarása úr togurum og álíka stykki. Ennfremur 2 fræsi- vjelar, 5 borvjelar, 5 slípivjelar, 3 vjelsagir á járn og trje, 6 eldstæði, lofthamar, 2 rafsuðu- vjelar með íilheyrandi, hnoðvjelar, logsuðu- tæki, fullkominn kafaraútbúnað og með hon- um 2 dælur til björgunar. Límofn og 3 liefil- bekki m. m. til moílelsmiði, plötuvals, blásara, lock- og klippivjel, fasta og hreyfanlega loft- þjetta, eða loftþjöppur, mikið af handverkfær- um o. fl. o. fl. í vjelsmiðjunni Hjeðinn eru helstu tækin: 7 rennibekkir, þar af einn, sem tekur l1/ m. stykki, eða af svipaðri stærð og' stærsti bekk- ur Hamars. 1 langhefil fyrir 1,5 m. liefillengd og nokkra stutthefla; 1 fræsivjel sem tekur 3 m. löng stykki, 1 sjálfvirka bor- og skrúfu- skurðarvjel, 4 loftþjöppur, 2 rafsuðuvjelar, 6 logskurðarvjelar, 1 lofthamar (smiðahamar) (i eldstæði og liandverkfæri lianda 70 manns. Auk þessa hafa Hjeðinn og Hamar í fjelagi nú i smíðum fullkomna plötusmiðju í sam- bandi við liinar nýju dráttarbrautir Slippsins, sem nú er verið að koma upp. Verður smiðju- lnisið 40x12 m. að flatarmáli, nauðsynlegar plötu, lock- og skurðarvjelar, beygivjelar o. fl. sem slíkri smiðju lieyrir til. Þegar hún er kom- in í gang, sem verður á þessu sumri, geta þess- ar smiðjur tekið að sjer fullkomnar flokkun- ar-aðgerðir á skipum alt að 500—600 tonn að stærð, allar aðgerðir á vjelum, sem hingað til hafa þekst lijer á landi, og öllum tækjum, stór- um og smáum, sem járnsmíði þarf til. í sambandi við þetta má geta þess, að vjel- smiðjan Hjeðinn hefir tekið upp smíði ýmsra hluta að nýju, síðan liún var stofnuð. Má þar til nefna eimkatla með alt að 15 ferm. liitaflöt, tanka fvrir olíu o.fl. er rúma alt að 1500 tonn, Vatnshjól (turbínur), togblakkir, járngrindur á toghlera (hracketo), keðjur, járnbobbinga, hjól- börur, járnstóla og borð, stálgrindahús, stál- klædd, til iðnaðar eða annara nota, og síðast en ekki sist, fullkomin lifrarbræðslutæki, sem nú eru sett upp og tekin til starfa. Er það hræðsluker með nýju lagi, sjálfvirkum tæm- ingarútbúnaði og síu, þannig að lýsið fer tár- hreint úr kerinu, segulútbúnaði til að hirða járn úr lifrinni. Þá er kvörn með síuútbúnaði til þess að ná allskonar rusli, steinum, töppum o. l'I. úr lifrinni, og tætir lhm lifrina síðan i sundur og dælir henni svo frá sjer sem lieilsteyptri, jafnri, fljótandi leðju. Loks er skilvinda, sem aðgrein- ir Iýsið frá vatni og sora og tæmir úr sjer lýs- ið í eina átt, en vatn og sora í aðra á meðan hún er í fullum gangi. Er þetta íslensk upp- fundning og íslenskt smíði að öllu leyti. Landssmiðja íslands er yngst af lnnum stærri vjelsmiðjum, stofnuð 1928, en þótt hún sje yngst, þá hefur hún þó þegar komið upp fleiri [ 5

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.