Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1933, Síða 9

Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1933, Síða 9
T 1 M A R I T IÐNAÐARMANNA Kökugerð á íslandi fyr og nú. Jeg hefi verið beðinn að rita sögu kökugerð- ar lijer á landi, frá því fyrsta og fram til vorra tima, en þar sem rúm er mjög takmarkað verð jeg að láta nægja að stikla á stærslu steinunum. Síðar gefst vonandi tækifæri til að rita ýtarleg- ar um þróun kökugerðar, jafnliliða þvi sem rituð verður saga brauðgerðar. Alt frá því fyrsta að brauðgerðarhús voru stofnsett bjer á landi liafa kökur verið fram- leiddar, jöfnum höndum og brauð, að vísu var kökuframleiðslan i mjög smáum stíl fyrst i stað og lengi vel fram eftir, en þokaðist þó bægt og bægt í rjetta ált, einkum og sjerílagi nú á síðustu 15 árum. Nú mun varla ofsagt að framleiddar sjeu um eitt liundrað mismunandi tegundum í flestum bakarium bjer í Reykjavik, alt frá smákökum upp í rjómatertur og kransa- kökur. Mjer hafa sagt eldri menn, að i fyrstu liafi ekki fengist aðrar kökur í brauðgerðarliúsum en smákökur, 2ja aura, jólakökur, sódakökur og stöku sinnum piparkökur. Svo kallaðar „finni kökur“ komu fyrst á markaðinn árið 1890, þá voru það formkökur fyltar aldinmauki og kremi og skreyttar með sykri (glassure). Um aldamótin komu á markaðinn rjómakök- ur, fyrst i smáum stil en sem smátt og smátt fór vaxandi fram til ársins 1908 að rjómakök- ur eru orðnar dagleg verslunarvara i öllum bauðgerðarbúsum bjer í bænum. Aðal ástæðan fyrir því að rjómakökur urðu ekki almenn verslunarvara fyr en þetta, var sú að erfitt var að fá rjóma, en þegar bílar tóku að flytja mjólk úr nálægum bjeruðum til bæjarins, gátu brauð- gerðarliús næstum daglega fengið nægilegan rjóma til notkunar. Fyrsta kökugerðarhús Iijer í Reykjavik var sett á stofn árið 1909, svokallað „Skjaldbreið" og voru þar eingöngu bakaðar kökur. Annað var stofnsett árið 1912 og það þriðja 1919 á Lauga- veg 5. Eftir það fór kökugerðum óðum fjölg- andi og fjölgaði þá jafnbliða kökutegundum bæði að tölu og fjölbreytni, og er nú svo komið hjer eins og víða í öðrum löndum að kökugerð er orðin sjergrein innan bakaraiðninnar. Samkvæmt lögum um iðju og iðnað frá 1928, ber hverjum iðnnema „bjálparlaust að leysa af liemh prófsmíð, eða inna af hendi eitthvert það verk, er sýni, að hann sje fullnuma í iðn sinni“. Með lögum þessum er stórt spor stígið í rjetta átt til að fyrirbyggja, að litt lærðir nienn geti tekið að sjer störf þeirra sem lokið liafa fulln- aðarprófi í iðn sinni. Fyrsta próf í kökugerð var tekið bjer i Reykjavik 20. apríl 1926 í köku- gerðarhúsinu á Laugaveg 5. Síðan bafa köku- gerðarpróf verið tekin i fleiri bakaríum bjer í bænum. Fyrst framan af voru það aðallega erlendir menn sem störfuðu að kökugerð bjer á landi, þar eð innlendir bakarar kunnu lítið í köku- gerð, en brátt tók áhugi íslenskra bakara að vakna og framtakssamir ungir menn fóru utan og lærðu kökugerð sem sjergrein. Nú er svo komið að næstum hver einasti „sveinn“ siglir til frekari mentunar, eftir að bafa lokið fulln- aðarprófi lijer og mun bakarastjettin nú vera skipuð nærri eingöngu Islendingum. Eins og skýrt var frá i Morgunblaðinu 24. og 26. þ.m. var i vetur að tilhlutun Bakarameist- arafjelags Reykjavikur starfræktur verklegur skóh, fyrir kökugerðarsveina og bakara, sem á- liuga böfðu fyrir kökugerð og skreytingu. Það Iiefir sýnt sig í vetur að full þörf var á starf- rækslu slíks skóla og er vonandi að liann eigi sjer langa framtíð til gagns fyrir bakarastjett- ina í heild. Að lokum vil jeg minnast á kexgerð og segja í fáum orðum sögu bennar. Fyrsta kexgerð sem starfrækt hefir verið lijer á landi var kexverk- smiðjan „Fón“ stofnuð árið 1923 af Ágúsli Jó- bannessyni, brauða- og kökugerðarmanni. Framleiðslan var htil i fyrstu en fór vaxandi fram lil ársins 1926 að verksmiðjunni var breytt í blutafjelag. Eftir það var verksmiðjan stækkuð og keyptar fulkomnustu nýtískuvjelar. Verksmiðjan mun nú framleiða um 40 mis- munandi kcxtegundir. Önnur kexverksmiðja var stofnuð í Hafnarfirði árið 1929 af Ásmundi Jónssyni, bakaram. og að því jeg best veit með fullkomnustu nýtísku vjelum. Jeg vona nú að mér bafi tekist að gefa les- endum þessarar greinar dálitla hugmynd um kökugerð bér á landi, bæði fyr og nú og læt Iijer staðar nema, en að síðustu vil jeg óska [ 7 ]

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.