Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1933, Side 9
T 1 M A R I T
IÐNAÐARMANNA
Kökugerð á íslandi fyr og nú.
Jeg hefi verið beðinn að rita sögu kökugerð-
ar lijer á landi, frá því fyrsta og fram til vorra
tima, en þar sem rúm er mjög takmarkað verð
jeg að láta nægja að stikla á stærslu steinunum.
Síðar gefst vonandi tækifæri til að rita ýtarleg-
ar um þróun kökugerðar, jafnliliða þvi sem
rituð verður saga brauðgerðar.
Alt frá því fyrsta að brauðgerðarhús voru
stofnsett bjer á landi liafa kökur verið fram-
leiddar, jöfnum höndum og brauð, að vísu var
kökuframleiðslan i mjög smáum stíl fyrst i
stað og lengi vel fram eftir, en þokaðist þó
bægt og bægt í rjetta ált, einkum og sjerílagi
nú á síðustu 15 árum. Nú mun varla ofsagt að
framleiddar sjeu um eitt liundrað mismunandi
tegundum í flestum bakarium bjer í Reykjavik,
alt frá smákökum upp í rjómatertur og kransa-
kökur.
Mjer hafa sagt eldri menn, að i fyrstu liafi
ekki fengist aðrar kökur í brauðgerðarliúsum
en smákökur, 2ja aura, jólakökur, sódakökur
og stöku sinnum piparkökur. Svo kallaðar
„finni kökur“ komu fyrst á markaðinn árið
1890, þá voru það formkökur fyltar aldinmauki
og kremi og skreyttar með sykri (glassure).
Um aldamótin komu á markaðinn rjómakök-
ur, fyrst i smáum stil en sem smátt og smátt
fór vaxandi fram til ársins 1908 að rjómakök-
ur eru orðnar dagleg verslunarvara i öllum
bauðgerðarbúsum bjer í bænum. Aðal ástæðan
fyrir því að rjómakökur urðu ekki almenn
verslunarvara fyr en þetta, var sú að erfitt var
að fá rjóma, en þegar bílar tóku að flytja mjólk
úr nálægum bjeruðum til bæjarins, gátu brauð-
gerðarliús næstum daglega fengið nægilegan
rjóma til notkunar.
Fyrsta kökugerðarhús Iijer í Reykjavik var
sett á stofn árið 1909, svokallað „Skjaldbreið"
og voru þar eingöngu bakaðar kökur. Annað var
stofnsett árið 1912 og það þriðja 1919 á Lauga-
veg 5. Eftir það fór kökugerðum óðum fjölg-
andi og fjölgaði þá jafnbliða kökutegundum
bæði að tölu og fjölbreytni, og er nú svo komið
hjer eins og víða í öðrum löndum að kökugerð
er orðin sjergrein innan bakaraiðninnar.
Samkvæmt lögum um iðju og iðnað frá 1928,
ber hverjum iðnnema „bjálparlaust að leysa af
liemh prófsmíð, eða inna af hendi eitthvert það
verk, er sýni, að hann sje fullnuma í iðn sinni“.
Með lögum þessum er stórt spor stígið í rjetta
átt til að fyrirbyggja, að litt lærðir nienn geti
tekið að sjer störf þeirra sem lokið liafa fulln-
aðarprófi í iðn sinni. Fyrsta próf í kökugerð
var tekið bjer i Reykjavik 20. apríl 1926 í köku-
gerðarhúsinu á Laugaveg 5. Síðan bafa köku-
gerðarpróf verið tekin i fleiri bakaríum bjer í
bænum.
Fyrst framan af voru það aðallega erlendir
menn sem störfuðu að kökugerð bjer á landi,
þar eð innlendir bakarar kunnu lítið í köku-
gerð, en brátt tók áhugi íslenskra bakara að
vakna og framtakssamir ungir menn fóru utan
og lærðu kökugerð sem sjergrein. Nú er svo
komið að næstum hver einasti „sveinn“ siglir
til frekari mentunar, eftir að bafa lokið fulln-
aðarprófi lijer og mun bakarastjettin nú vera
skipuð nærri eingöngu Islendingum.
Eins og skýrt var frá i Morgunblaðinu 24.
og 26. þ.m. var i vetur að tilhlutun Bakarameist-
arafjelags Reykjavikur starfræktur verklegur
skóh, fyrir kökugerðarsveina og bakara, sem á-
liuga böfðu fyrir kökugerð og skreytingu. Það
Iiefir sýnt sig í vetur að full þörf var á starf-
rækslu slíks skóla og er vonandi að liann eigi
sjer langa framtíð til gagns fyrir bakarastjett-
ina í heild.
Að lokum vil jeg minnast á kexgerð og segja
í fáum orðum sögu bennar. Fyrsta kexgerð sem
starfrækt hefir verið lijer á landi var kexverk-
smiðjan „Fón“ stofnuð árið 1923 af Ágúsli Jó-
bannessyni, brauða- og kökugerðarmanni.
Framleiðslan var htil i fyrstu en fór vaxandi
fram lil ársins 1926 að verksmiðjunni var
breytt í blutafjelag. Eftir það var verksmiðjan
stækkuð og keyptar fulkomnustu nýtískuvjelar.
Verksmiðjan mun nú framleiða um 40 mis-
munandi kcxtegundir. Önnur kexverksmiðja
var stofnuð í Hafnarfirði árið 1929 af Ásmundi
Jónssyni, bakaram. og að því jeg best veit með
fullkomnustu nýtísku vjelum.
Jeg vona nú að mér bafi tekist að gefa les-
endum þessarar greinar dálitla hugmynd um
kökugerð bér á landi, bæði fyr og nú og læt
Iijer staðar nema, en að síðustu vil jeg óska
[ 7 ]