Tímarit iðnaðarmanna


Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1933, Qupperneq 11

Tímarit iðnaðarmanna - 01.03.1933, Qupperneq 11
T í M A R I T IÐNAÐARMANNA Burstagerðin. Burstagerðin var stofnsett 1. maí 1930. Fram- leiðsluvara hennar er ýmsar tegundir af burst- um og kústum, og er þetta fyrsta og eina fyrir- tækið af þessari tegund lijer á landi. Eigandi Burstagerðarinnar, Hróbj. Árnason var á burstaverksmiðju i Kbli. árið 1929, og lærði þá þessa iðn, og liefir rekið liana lijer í Reykjavík nú um þriggja ára skeið, fyrst i mjög smáum stil, en læfir aukið hana árlega, og eru nú seldar burstavörur frá Burstagerðinni um alt land, og eru altaf að ryðja sjer til rúms meira og' meira, og er húist við að burstagerð- in geti fullnægt að miklu leiti allri eftirsþurn á þessari vöru lijer á landi nú á najsta ári. Burstagerðiu hefir framleitt flestar tegundir af burstum og kústum til heimilisnota, fisk- verkunar og skipa, en málarapenslum hefir hún ekki enn byrjað á, en í ráði er að framleiða þá einnig svo fljótt sem unt er. Mest alt efni til hurstagerðar verður að flytja inn í landið, og hurstatrjen eru smiðuð á trje- verksm. erlendis. Væri það vel atliugavert fyrir einhverja smiði hjer, hvort hægt væri að framleiða þau lijer. Burstagerðin liéfir nú sett niður vinnustof- ur sínar á Laufásveg 13, í stærra húsrúmi en áður var. H. Á. Ný iðngrein. I síðustu „íslensku viku“ komu stálliús- gögn i fyrsta skifti fvrir almennings- sjónir, lijer á landi. Aður hefir verið smíðað lítilsháttar af j járnhúsgögnum í vjelsmiðjunni Iljeð- inn og Landsmiðj- unni. G. Ó. Stúlhúsgagnagerðin. (íslenska vikan 1933). Stálhúsgögn eru, sem kunnugt er, smíðuð ú; fjaðrandi stálrörum, á þann Iiátt að rörin eru beygð í þar til gerðum vjelum, i það form sem hver vill. Síðan eru þau chrome-húðuð, nikkel- liúðuð, eða máluð eftir vild kaupandans. Þeir fjelagar Gunnar Jónasson og Björn Ólsen, sem riðið hafa á vaðið í þessari iðn- grein, liafa með fábærum dugnaði og liand- lægni smíðað vjelina, er þeir hevja rörin í, sjálf- ir. Við húsgagnasmiðir Tnegum fágha því, að þessa grein húsgagnasmíðinnar skuli eigi vanta lengur hjer á landi,þar sem það er fyrirsjáanlegt að stálhúsgögn verða flutt inn í landið strax og mnflutningshöftunum verður ljett af. Þau eru nú mikið notuð erlendis þar sem kröfur eru gerðar til hreinlætis og styrkleika, svo sem i skóluin, gildaskálum, sjúkrahúsum o. s. frv. Jeg liefi heyrt marga segja að stálhúsgögn sjeu köld og óviðeigandi í heimahúsum, en jeg Ijýst við að }iegar fólk fer að kynnast þeim, j)á verði þau einnig notuð þar. Jónas Sólmundsson. [ 9 ]

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.