Tímarit iðnaðarmanna - 01.02.1939, Síða 12

Tímarit iðnaðarmanna - 01.02.1939, Síða 12
Tímarit iðnaðarmanna- Virtist skápurinn hafa safnað lhtamnn frá revk- háfnuni þangað til eldur kviknaði í skápnum. Hér er uni ilnigunarefni aS ræSa. Fyrst og fremst vitum viS ekki livaS steinsteyptir reyk- háfar endast lengi. Væri ekki ástæSa til að hafa veggi þeirra þykkri en þeir eru? eða hlaSa um þá steyptum steinum til aS einangra þá meira? Eilt er alveg víst, að ekki er gerlegt aS nota króka eSa skot, sem stundum myndast viS reykháfa, til aS gera þar fataskápa og því um likt, þar sem liitasterk eldfæri eru notuS. Ef viS berum sáman hlutföllin milli timbur- og steinsteypuhúsa frá ári til árs, sjáum viS aS timburhúsin, sem reist eru, mega heita liverf- andi nú orSiS, lil dæmis var brunabótavirðing liúsa hér í Reykjavík um áramót 1937—38 um 124,7 miJjónir; af því voru steypuhús án timburs ................ 9,(5% steypuhús, limbur að einhverju leyti .... (51,2% timburhús fyrsta flokks alveg járnvarin 2(4,7 % timburhús annars fl. að mestu járnvarin 2 ,5% Þetta er meðaJ margs annars orsök þess að Reykjavík á nú kost á brunatryggingum meS óvanalega góðum kjöruin, eða 25—27% ódýr- ara en áður var, og 10% af netto ágóða, eins og áður. Það er eindregið álit mitt að við séum þarna á réttri leið i byggingarmálunum og að við eigum ekki að kvika frá þeirri aðalstefnu, sem við höfum nú í þessum málum, að bvggja aðeins vönduS steinsteypubús, því að með áframlialdi og umbótum þeirrar stefnu skapast þjóðinni varanleg verðmæti. „TÓNNINN“ TIL LÐNAÐARINS. Gamall spekingur hefir sagt: „Ef þú vilt efla þitt eigið sjálfstæði og þjóðar þinnar í heild, |iá gefðu gaum að því sem sagt er og gerl“. Beggjamegin við hin síðustu áramót átti sér stað eftirfarandi í höfuðstað íslands: Verzlunarfulltrúi eins stærsta verzlunarfyrir- lækis bæjarins kemur á tólfta tímamun til eftir- lits í sölubúSinni, sér nýkomið búnt á gólfinu, gengur að því, spyrnir við því fæti og segir nieð þjósti: „Er nú þetta þessi islenzka framleiðsla?“ r Arni Sveinsson trésmíðameistari. Hann andaðist 8. febr. s I. eftir all-langa legu, rösklega áttræður. Árni var einn af elztu, lærSum trésmiðum landsins. Starfaði hann í blóma aldurs síns á Vestfjörðum og var einn af stofnendum ISnað- armannafélags ísaf jarðar. Hans hefir verið allrækilega minst i 3. árg. Tímaritsins og vísast til þess, sem þar er sagl um þennan merka mann. Ein húsfreyja bæjarins kemur inn í raftækja- verzlun og óskar eftir að fá að sjá rafmagns- eldavélar. „En við höfum aðeins þær íslenzku“, svarar búðarstúlkan. Einn heildsali bæjarins var að ræða við iðnað- armann uin islenzkan iðnað. Viðræðurnar urðu að deilu og heildsalinn segir meðal annars: , Islenzkir iðnaðarnlenn eru h....... „fúsk- arar“ og ekkert nýtilegt, sem frá þeim kemur.“ Þannig er „tónn“ altof margra verzlunar- manna til íslenzkrar framleiðslu. En það er al- veg áreiðanlegt að vísan hans P4ggel'ts Ólafsson- ar, sem Vilhjálmur Þ. Gíslason lekur upp í hið nýja tímarit verzlunarmanna „Frjáls Verzlun" lil að minna á liina dönsku búðarþjóna, er enn í gildi: Þó að margur upp og aftur ísland niði búðarraftur, meira má en kvikindskjaftur kraftur guðs og sannleikans. 6

x

Tímarit iðnaðarmanna

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.