Tímarit iðnaðarmanna - 01.08.1949, Side 9

Tímarit iðnaðarmanna - 01.08.1949, Side 9
Iðnaðarritið 3.- 4. XXII. 1949 að mikinn gjaldeyri, þá er hann á mörgum svið- um stöðvaður og á öðrum mjög aðþrengdur vegna efnisleysis. Með þessu er verið að drepa niður atvinnulíf í landinu, en ekki að halda því við. Þetta er að auka gjaldeyrisþörf landsmanna, en ekki að draga úr henni. Þetta er alvarlegt mál, ekki aðeins fyrir iðnaðarmenn, heldur fyrir þjóð- ina alla og atvinnulíf hennar, því það ætti að vera orðið augljóst mál, að þjóðin getur ekki orð- ið án iðnaðarstarfsemi lifað. Það er ekki hægt að keyra hana aftur á bak til þeirra tíma, þegar hún átti alla afkomu sína undir hokurbúskap og bátafiskveiðum. Annað atriði er þó ef til vill enn- þá alvarlegra í þessu sambandi. Það er ákaflega ískyggilegt útlit í heiminum með friðsamlega sambúð þjóða og allt útlit til þess að ófriður skelli á innan skamms tíma. Á sama tíma er land- ið fátækt af nauðsynjavörum og hráefnum og örþrota af ýmsum þurftarvörum. Það er óvíst að næsta styrjöld geri okkur kleifa aðdrætti erlendis frá, og iðnaðurinn getur heldur ekki hlaupið undir bagga vegna efnisskorts. Hér virð- ist mér ekki viturlega að verið, og ekkert hafa lærzt af reynslunni. I þriðja lagi tel ég rétt að nota þetta tækifæri til þess að benda á, að skynsamlegra er að veita fé og leyfi til fárra framkvæmda í senn, og láta fullgera þær og koma þeim í fullt gagn, en að byrja á mörgum og láta þær standa hálfgerðar árum saman undir átökum íslenzkrar vetrarveðr- áttu. Það er augljóst mál, að með því binzt fé lítt notað um langan tíma, og mikil verðmæti eyðast árlega í skemmdir af völdum veðra og vanhugsunar manna. Þessi atriði tel ég rétt að iðnþingið taki til athugunar. En auk þeirra liggja fyrir á dagskrá þingsins ýmsir gamlir kunningjar, eins og fræðslumál, fjármál, gjaldeyrismál iðnaðarins og útvegun áhalda og hráefna. Eg treysti fulltrúum þingsins til þess að afgreiða þessi mál þannig, að valdhafar þjóðarinnar verði að viðurkenna, að hyggilega og sanngjarnlega sé að verið, svo að afgreiðsian verði iðnaðarmönnum til gagns og þinginu til sóma. 10. iðnþing íslendinga er sett. Að lokinni ræðu forseta var kosin kjörbréfa- nefnd og eftir tillögum hennar öll framlögð kjör- bréf samþykkt. Embættismenn þingsins voru kjörnir: Forseti: Guðm. H. Guðmundsson, Reykjavík, 1. varaforseti: Guðjón Scheving, Vestmannaeyj- um, 2. varaforseti: Guðm. Halldórsson, Reykja- vík. Ritarar: Ársæll Árnason, Vigfús L. Friðriks- son og Sveinbjörn Jónsson. Fastanefndir voru kosnar einróma eftir tillög- um Sambandsstjórnar. Alls sátu þingið 63 fulltrúar, þar af 3 konur. Frá Akranesi 3, frá Akureyri 4, frá Hafnar- firði 7, frá Isafirði 3, frá Keflavík 3, frá Nes- kaupstað 1, frá Blönduósi 1, frá Reykjavík 32, frá Seyðisfirði 1, frá Selfossi 2, frá Patreksfirði I, frá Vesmannaeyjum 5. Fulltrúar voru: 26 fyrir iðnaðarmannafélög, 1 fyrir Iðnráð, 29 fyrir sérfélög, 5 fyrir iðnskóla og 2 fyrir Iðnaðarritið. Þingmál. Sambandsstjórn lagði þessi mál fyrir þingið: 1. Upptaka nýrra sambandsfélaga. 2. Frumvarp til laga um iðnskóla. 3. Fjármál iðnaðarins. 4. Útvegun efnis og áhalda. 5. Gjaldeyris- og innflutningsmál. 6. Efling og þróun iðnaðarins. 7. Útgáfa handbóka. 8. Iðnsýningar. 9. Flokkun húsa. 10. Sameiginlegt merki fyrir iðnaðarmenn. II. Kosning fulltrúa á næsta norræna iðnþing. 12. Nýjar iðngreinar. 13. Gerfi iðnaðarmenn. 14. Reglugerð um heiðursmerki. 15. Varnir gegn elds- og slysahættu. 16. Lagabreytingar. 8 þingfundir voru haldnir dagana 25., 26., 27., 28. og 29. sept. Reikningum Sambandsins var útbýtt fjölrituð- um, og samþykktir samhljóða af þinginu. Skýrslu Sambandsstjórnar var einnig útbýtt fjölritaðri í þingbyrjun. Urðu um hana litlar um- ræður. Fyrirspurnum um hana svaraði forseti Sambandsins. Skýrslan var samþykkt samhljóða. 27

x

Tímarit iðnaðarmanna

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit iðnaðarmanna
https://timarit.is/publication/365

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.